þriðjudagur, apríl 20, 2010

...frá amsterdam

stebbi eyddi helginni í amsterdam í hópi dónakalla frá kaupmannahöfn. úr þessari dónakallaferð færði stebbi mér svooo fallega hluti, ég er alveg í skýjunum. æðislega falleg hollensk tímarit sem ég er sjúk í... foam og blend, get ekki hætt að fletta þeim... mjög inspirerandi.

og síðast en ekki síst kom hann með stroopwaffels, sem er mitt nýja uppáhalds! þunnt vöfflukex með bestu karamellu sem ég hef smakkað.! held að amsterdam hafi bara orðið pínu uppáhalds eftir þessa strákaferð, þó ég hafi ekki verið sú sem heimsótti. kannski fæ ég að skjótast þangað næst... fletta hollenskum tímaritum, borða stroopwaffels og mingla við erwin olaf...

já pant!