mánudagur, febrúar 22, 2010

Glacier Portraits

Glacier Portrait 1

Glacier Portrait 2

Glacier Portrait 3

þetta eru myndirnar sem ég var með á ljósmyndasýningu sem opnaði á laugardaginn síðasta í gallerí kaleidoskop, hér í berlín.
ég prentaði þær út 90x120 cm stórar og fyllti heilan vegg með þeim. ég er ekki frá því að það hafi lyfst aðeins á mér typpið þegar ég sá þær hanga þarna í einni strípu.
opnunin var hrikalega skemmtileg, fullt af fólki sem kom til að skoða myndir og fagna. ég fékk fullt af hrósi og heyrði margar athyglisverðar pælingar um myndirnar... sumar sem höfðu ekki einu sinni farið í gegnum hausinn á mér. en ofsa skemmtilegt þegar verkin manns vekja spurningar og vangaveltur hjá fólki, það þýðir að þau hafi skilið e-ð eftir sig.



jöklamyndirnar tók ég þegar ég fór með yndislegum vinum upp á sólheimajökull núna í janúar, með herdísi ofurhuga í broddi fylkingar. þetta var mikil ævintýraför og upplevelsi hið mesta. sýni kannski fleiri myndir frá þeirri ferð síðar...

aðeins frá opnuninni...

8 Comments:

Blogger Ragnheidur said...

Til hamingju með þetta Rut, ótrúlega flottar myndir hjá þér :)

11:35 AM  
Anonymous Herdis said...

Jess, fallegur vangasvipurinn á mér þarna... :)

Til hamingju Rut, vel af sér vikið! Mjög fullorðins að vera með myndir á sýningum hingað og þangað um Berlín - svona eins og maður gerir...

12:23 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju elsku Rut uppáhaldseldri;) þetta er ótrúlega flott hjá þér og ég er að springa úr stolti;) svo eruð þið hjónin svo afskaplega falleg og fín (flottur kjóll!!!) og rósirnr frá Stebba fara þér vel (eins og reindar allt;))
Elska ykkur til tunglsins og til baka, kossar og knús frá Hól;)

12:26 PM  
Blogger Ágústa said...

Til hamingju elsku Rut! Geðveikar myndirnar þínar og þú sjálf ofsalega sæt í fjarskalega fallegum kjól!

Kossar til Berlín xx

9:23 AM  
Blogger Sigrún said...

Glæsilegar myndir og ótrúlega pró að sýna í galleríi í Berlín. Nú fer örugglega eitthvað spennandi i gang! Stoltar kveðjur frá tengdó.

9:54 AM  
Blogger Huld said...

Þú ert bara flottust!

12:03 PM  
Blogger hs said...

Flottar myndir! meira meira.
bestu kveðjur
hulda sif

11:21 PM  
Blogger Rut said...

danke
danke
danke
:)

12:54 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim