sunnudagur, nóvember 08, 2009

kaleidoskop & Jazz fest

ég var mjög montin af natalie vinkonu minni í gær þegar hún opnaði listagalleríið kaleidoskop heima hjá sér. galleríið er á jarðhæð, í tveimur herbergjum sem snúa að götu, þar fyrir aftan er svo eldhúsið hennar, klósettið og svefnherbergið. í gærkvöldi opnaði hún svo með heljarinnar partíi, fullu húsi af fólki, list og veigum... allt bara heima hjá henni! við stebbi fórum og hittum liðið, hetjuna hana natalie, kennara og skólafélaga. endilega kíkið við í galleríið ef þið eigið leið um berlín, eða amk á heimasíðu gallerísins... ég er þar hluti af artista-networkinu.

þegar nokkuð var liðið á opnunina tókum við stebbi stefnuna á jazz fest, tónleika með big bandi samma í jagúar. ég hef aldrei skilið jazz. upphitunarbandið var svona típískt jazz-band (eftir minni leikmannsskilgreiningu), fjórir hljóðfæraleikarar þar sem allir voru að spila sitthvort lagið og taka sóló... á sama tíma! skil ekki svona músík. en svo steig sammi með sitt 17 manna band á svið, allir í frekar skondinni múnderíngu, gömlum íþróttagöllum, elvis-búning og afríku-kuflum. þá sögðu danirnir við hliðina á okkur í frekar skrítnum tón: "det er jo tæmmelig i overkanten!". þurrprumpu danir. tónleikarnir voru svo bara eitt stórt partí. frábær fönk tónlist, dans og grúv.
ef þetta er jazz, þá fíla ég jazz!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

yess blogg
knús og ást á ykkur

10:42 PM  
Blogger Julia said...

Glæsilegt.
Elska að hata dönsku!
En hvað gerðuð þið á hátíðinni á helginni???

7:00 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim