bissí krissí
mjög bissí vika að baki... önnur ekki minna bissí vika framundan.
ég hef lokið við að taka annað guða-portrettið mitt. það gekk svona glimrandi vel, alveg ótrúlega ánægð með afraksturinn. ég ætla að birta það þegar hitt er líka tilbúið.
það er aldeilis búið að láta reyna á nýju myndavélina, en ég er líklega búin að taka hátt í þúsund myndir síðustu tvo daga. portrett af litlum og stórum, og svo var rosa keyrsla í gær þegar ég tók tísku fyrir ísraelskan hönnuð. það var rosalega skemmtilegt, og mikið var ég þreytt þegar ég kom heim í gær. við vorum allt í allt 7 stelpur sem tókum þátt í verkefninu á einn eða annan hátt... ég var sú eina gagnkynhneigða. það var nokkrum sinnum sem ég þurfti að bíta í tunguna, fannst þær sumar svo fyndnar.
á morgun ætlum við að halda afmæliskökuboð fyrir úlfinn sem varð 3ja ára þann 24. nóvember. þessi afmælisfögnuður er búinn að teygjast á svo marga daga að ég veit ekki hvernig drengurinn á eftir að verða í janúar eftir jólahátíðina... hva'... enginn pakki í dag?!?!
í næstu viku verð ég svo á workshop-i að læra ennþá betur á forritið isadora, en höfundur forritsins ætlar að halda workshop í berlín og kenna advanced notendum alls kyns leynitrix. skólinn bauð mér (og einum kennara) á námskeiðið þar sem ég er líklega sú sem kann einna best á þetta forrit í skólanum. þetta er rándýrt námskeið, og alls kyns töff hlutir sem verða kenndir þarna, þ.a. ég gat ekki sagt nei... þó ég væri að drukkna í vinnu. kennarinn sendi mig heim með wii-fjarstýringu til að leika með og finna e-ð sniðugt sem fjarstýringin gæti stýrt í umhverfinu. spennó!
já og nokkrar nýjar myndir á flickr-inu mínu!

2 Comments:
Superwoman!
þú ert svo dugleg og klár! get ekki beðið eftir að sjá goðamyndirnar.
Sendu inn athugasemd
<< Heim