fimmtudagur, mars 26, 2009

heim
það sem tók við mér í berlín eftir frábæra íslandsheimsókn voru 3 skólaverkefni sem ég þarf að skila fyrir mánaðamót til að geta klárað önnina, og það að læra að vera single mom með tvö börn á meðan stebbi vinnur fyrir salti í grautinn... svona eins og hjá venjulegu fólki. þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel, þó það sé ekki mikill tími aflögu til að eyða í e-ð annað en nákvæmlega þetta.

ég er orðin ferlega spennt fyrir apríl mánuði, en þá ætla ég sko að byrja fyrir alvöru í dúkkuleik. við rán ætlum að njóta dagsins saman í allskyns skemmtilegu, þangað til við sækjum stóra á leikskólann. þá verður vorið líka komið... það gerist held ég ekki betra. svo fæ ég heilt sumar og vel það í frí, eða þangað til í október þegar skólinn byrjar aftur, en þetta er mikið ólíkt síðasta sumri sem var líklega það stysta í mínu lífi.

svo er ég að springa úr jákvæðni inní mér... sem er góð tilfinning!