mús
í gærkvöldi hljóp mús yfir tærnar á mér... í eldhúsinu mínu!
ég fékk taugaáfall!
tapaði kúlinu í smá stund, öskraði eins og kelling og hljóp skjálfandi fram. stebbi mætti strax á staðinn klæddur í einn inniskó, hélt hinum hátt á lofti... en hann ætlaði sér að veiða mýslu, vopnaður inniskó. það tókst ekki í þetta skiptið.
ég þurfti að fara í bælið með þessa músadruslu á heilanum. við gátum ekkert gert nema lokað öllum hurðum og vonað að hún myndi ekki skríða upp í til okkar. það ætti að vera opin neyðarþjónusta allan sólarhringinn fyrir svona tilfelli, þar sem e-r mætir með músagildru og hvað það er sem þarf og gengur frá þessu á staðnum svo maður geti farið áhyggjulaus að sofa.
stebbi fór í morgun og keypti fullt af gildrum sem verða settar upp í kvöld. á meðan forðast ég eldhúsið eins og heitan eldinn og passa mig að girða skálmarnar vel ofan í sokkana.
í gærkvöldi hljóp mús yfir tærnar á mér... í eldhúsinu mínu!ég fékk taugaáfall!
tapaði kúlinu í smá stund, öskraði eins og kelling og hljóp skjálfandi fram. stebbi mætti strax á staðinn klæddur í einn inniskó, hélt hinum hátt á lofti... en hann ætlaði sér að veiða mýslu, vopnaður inniskó. það tókst ekki í þetta skiptið.
ég þurfti að fara í bælið með þessa músadruslu á heilanum. við gátum ekkert gert nema lokað öllum hurðum og vonað að hún myndi ekki skríða upp í til okkar. það ætti að vera opin neyðarþjónusta allan sólarhringinn fyrir svona tilfelli, þar sem e-r mætir með músagildru og hvað það er sem þarf og gengur frá þessu á staðnum svo maður geti farið áhyggjulaus að sofa.
stebbi fór í morgun og keypti fullt af gildrum sem verða settar upp í kvöld. á meðan forðast ég eldhúsið eins og heitan eldinn og passa mig að girða skálmarnar vel ofan í sokkana.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim