föstudagur, júlí 11, 2003

Til hamingju með sigurinn í gær Valsmenn nær og fjær. Ég, Barði, Sveinn, Dóri og Sigurður mættum og völlinn og stóðum við bakið á okkar mönnum. Þeir fóru hreinlega á kostum og hefðu getað skorað óteljandi mörg mörk gegn döprum Fylkismönnum. Skál fyrir þér Stefán (Helgi Jónsson).
Stuttu seinna fórum við (ég+Rut+Barði) á Hverfisbarinn að fylgjast með átrúnaðargoðum kjúklinga-Barða í bransanum. Sjonni, Jói og hljómborðsleikari Sniglabandsins, sem ég man ekki hvað heitir, tróðu upp og voru alveg gríðar góðir. Þeir verða víst þarna öll fimmtudagskvöld í sumar, held ég, og það er alveg óhætt að mæla með þessu. Prýðis kvöld bara.