þriðjudagur, júní 10, 2003

loksins loksins sýndi msn-ið mitt viðbrögð og loggaði mig inn. núna er ég algjör gella, komin með msn messenger v. 6.0 sem ég nálgaðist hér með hjálp þórhildar með hjálp gumma. þetta er e-ð voða fínt, myndir og svoleiðis. svo getur maður m.a.s. sent svona emoticon með kind og snigli, sem er voða sætt.

annars var helgin fín. þriggja daga helgar eru yndislegar. annar í öllu er svo frábært. á föstudaginn fór ég í útskrift til þorbjargar sem var mjög skemmtilegt. hún var ýkt sæt og fékk fullt af fallegu dóti í útskriftargjöf, eins og tussurennu. svo fórum við í bæinn á staði eins og kaffibar, sólon (þar sem stebbi fékk grænar bólur), 11 og sirkus sem var algjör snilld. við enduðum svo á devitos (eins og venjulega).
hallur átti svo óvænt afmæli á sunnudaginn. hann vissi ekki neitt greyið, það var búið að ljúga hann fullan, hann svo bara í heimsókn til öfu sinnar í kef, kom svo heim þar sem slegið var upp góðu geimi.
aldrei hef ég fengið svona supplæs veislu... annars á ég afmæli 13. maí, ef e-jum dettur það í hug á næsta ári.