ágú og þórhildur komu í heimsókn snemma í gær í þessu líka þjóðhátíðarskapi. þær höfðu vaknað við "öxar við ána" og höfðu þá þegar heyrt "hæ, hó, jibbí jei" og vildu því endilega drífa sig niður í bæ að sýna sig og sjá aðra. þær rifu okkur því á lappir og út. á leiðinni niður í bæ fundum við upp á alveg frábærum leik... leik sem snerist um það að giska á það fyrir fram hve mörgum við heilsum, hve marga við kyssum og hvað hópurinn sem heild heilsar mörgum... eða "við sem fjölskylda", eins og e-r sagði svo snilldarlega. sumir voru mjög fljótt búnir með sinn "hæ"-kvóta og var hinum því mjög skemmt í hvert sinn sem þeim og hinum sama var heilsað, hvað þá ef ráðist var á hann og kysst... þrátt fyrir að vera löööngu búinn með kyssukvótann sinn!!! við bættum við einni reglu þegar við sáum að við sprungum flest fljótt og leyfðum það að ef maður heilsaði "óvart" fleirum en maður var búinn að segjast ætla að gera, þá mátti reyna að ná að heilsa eins mörgum og maður sagði að við sem fjölskylda gerðum og eyðileggja þannig fyrir öðrum. að auki voru nokkrar litlar reglur eins og það varð að heilsa manni á móti... svona ef e-r skyldi ætla að grípa til örþrifaráða á heimleiðinni kannski og heilsa bara e-jum sem hann þekkti ekkert... iiiiiii. eins myndi fólk sem væri í innsta hring, sem við þekktum öll vel, núllast út. ólöf, rúnar og steinar núlluðust út í þessari ferð. svo fór nú næstum að ágústa núllaðist út vegna hungurs, en við rétt sluppum inn á gráa köttinn til að koma í veg fyrir slíkan ófögnuð. en það er skemmst frá því að segja að ég og ágústa sigruðum, hún með rétta tölu fyrir sig sem einstakling og ég með rétta tölu fyrir okkur sem fjölskyldu. ég mæli með þessum hressa leik fyrir tækifæri eins og 17. júní, menningarnótt og svoleiðis.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim