miðvikudagur, júní 11, 2003

úú... við fengum innflutningsgjafir tvær í gær.
vöfflujárn frá ömmu sem er ótrúlega flott. þ.a. þegar þið komið næst í heimsókn þá verð ég búin að kaupa vilko vöffluduft ( ;-) og skelli í nokkrar pjötlur... haldiði að það sé nú fínt. svo færðu m+p okkur þennan líka fína örbylgjuofn. sá á eftir að koma sér vel. fyrir mig því mér er lífsins ómögulegt að skammta 2-3 manneskjum pasta, elda alltaf fyrir 76 manns, gott að geta hitað herlegheitin bara upp daginn eftir... og næsta og næsta og næsta. jújú segðu. fyrir stebba því hann er alinn upp við mikið mikið poppát (önnbílívúbúl), enda fékk hann líka einn stóran orville með sem hann svaf með undir koddanum í nótt. já þessi örbylgja er mikill gleðigjafi.