bóndadagurinn var á föstudaginn. ég bauð stebba út að borða á sticks'n sushi, sem er mjög hetjulegt þar sem ég kýs að leggja mér ekki fjörufæði (get alveg eins farið niður í fjöru og sleikt steinana) eða neitt með sogskálum til munns. ég fékk mér í staðinn alls kyns sticks sem bragðaðist misvel, að mestu þó vel. svo fórum við í leikhús að sjá rakstur eftir ólaf jóhann, reyndar í boði europay, það var alveg brill. eftir þetta menningarrölt brugðum við okkur á ara í ögri að hitta kristínu, ágústu og þórhildi, skunduðum síðan öll þaðan á hverfisbarinn í stjórnmálafræðipartí eitthvert, eða við nýttum okkur a.m.k. stjórnmálafræðitilboðin á barnum, það var gott. þangað streymdi að fólk eins og þorbjörg og jón, tóta, ásta björk og fleiri. varð úr hin ágætasta skemmtan. ég held samt að hápunktur þessarar hverfuferðar hafi verið atriðið sem ágústu sýndi mér einni, því er nú ver og miður. ég sat ein uppi í sófanum okkar (var að passa allt dótið), ágústa kemur labbandi af klósettinu, nýbúin að gera sig svona líka sæta og fína. en aumingja ágústa... hún lýsti þessu eiginlega best sjálf... "allt í einu mætti ég 2 ógislega stórum mönnum sem héldu að þeir væru að keppa í ólympíuleikunum í dvergakasti!!!" hehehehe... já það var eiginlega nákvæmlega þannig. 2 risar gripu allt í einu í ágústu, litlu, sætu og fínu, lyftu henni yfir höfuð sér og héldu henni þannig í þó nokkra stund. ágústu kallaði og kallaði "rut, rut!!!" og horfði á mig ógnarstórum augum. ég lamaðist gjörsamlega úr hlátri... hvað átti ég að gera??? í staðinn fyrir að rétta elskulega vinkonu minni hjálparhönd, kútveltist ég þarna í sófanum og orgaði gjörsamlega... þetta var svoooo fyndið. en loksins slepptu risarnir henni. ágústa var þá orðin mjög reið og vildi hefna sín, en vissi ekki alveg hvernig. það endaði með því að hún hrinti öðrum allsvakalega þ.a. hann færðist um 2.7 mm, og strunsaði svo til mín. hehehe... þeir gera þetta sko ekki aftur, hlutu þarna makleg málagjöld og munu eflaust hætta að hrella ungar stúlkur með þessum leik sínum... you showed them!!
stuttu seinna ætlaði ungur drengur að setjast á stól við borðið okkar, nema hvað að um leið og hann ætlaði að tylla sér þá kippti annar strákur stólnum undan honum þ.a. sá fyrri hlammaði sér beint á gólfið. hehehe... ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta var bara of mikið... hehehehe... enda fór ég heim stuttu seinna.
stuttu seinna ætlaði ungur drengur að setjast á stól við borðið okkar, nema hvað að um leið og hann ætlaði að tylla sér þá kippti annar strákur stólnum undan honum þ.a. sá fyrri hlammaði sér beint á gólfið. hehehe... ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta var bara of mikið... hehehehe... enda fór ég heim stuttu seinna.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim