Jæja seinasta svona frekar rólega helgin að baki. Og ekki nema 10 dagar eftir í Köben.
Föstudagskvöldið var mjög rólegt og fór í pizzuát og sjónvarpsgláp. Ég bauð reyndar nágrönnunum í mat, þeim Fúsa og Gullu, og þau voru mjög hrifin af pizzugerðarhæfileikum mínum.
Ég vakanaði svo frekar snemma á laugardeginum því það var stefnan að ná smá búðarápi áður en ég færi að sjá Man U vs. Arsenal en lestakerfið eyðilagði það fyrir mér. Það var eitthvað sporarbejde í gangi svo það tók mig einn og hálfan tíma að komast niðrí bæ, tekur venjulega mest 30 mín. Eftir að hafa fylgst með Man U yfirspila Arsenal og vinna verðskuldað 2-0 þá hélt ég á flakk um Strikið með Kidda (afmælisbarn þess 7. des fyrir þá sem því gleymdu!), Ingó, Stebba Jóns, Jóni og Írisi. Við röltum um, tókum videomyndir og enduðum í bæði heitu kakó og jólaglöggi í Nyhavn. Síðan var stefnan tekin á Amager í pizzu og bjór á Vibrandtsvej. Seinna um kvöldið var svo haldið á færeyska öfur pöbbinn Skarv. Það er allta svoldið merkilegt að kíkja þangað. Áður en ég fór heim ákvað ég að stoppa á pizzastað á Nörreport. Þegar ég labbaði inn brá mér svoldið því það fyrsta sem ég sá var maður sem var 2m á hæð og 2m á breidd, alveg sköllóttur með svona dónött skegg og læti. "Örugglega einhver bæker, Hells Angels eða eitthvað", hugsaði ég. Grunur minn var svo staðfestur þegar ég settist fyrir aftan hann og sá að hann var með tattúverað "
Expect no mercy" í hnakkan á sér með svona gotnseku letri!!! Ég var eiginlega svoldið hræddur og ákvað að fara ekki út fyrr en hann væri farinn af ótta við að sulla óvart yfir hann gosi eða eitthvað þegar ég gengi fram hjá honum. Sunnudagurinn var svo londerídei og fór að mestu í tiltekt og uppvask auk þvotta.