fimmtudagur, nóvember 28, 2002

írakabakarí, raksápupáskar, Alaskaþaksala og golfaraflog. Viljidi meira... tjekkid

miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Hhhmmmmmmmmmm

Thid sem eigid fartølvur verdid ad fara varlega! Thad var frétt í danska bladinu Metro Express um enskan mann sem brenndist á lim og eistum thví hann sat of lengi med tølvuna í kjøltunni. Hann sat vid tølvuna í um 2 tíma og fór svo ad sofa thannig brunninn uppgøtvadist ekki fyrr en morgunin eftir! Skrítid.
komin heil heim úr húsafelli.
held að það hafi verið 27 manns í þremur bústöðum. eins og sönnum tölvunördum sæmir þá var með í för ofurtölva, ofurgeislaspilari, mp3-spilari og tveir ofurhátalarar... jújú, bara helstu nauðsynjar. strategían mín "sofa lítið, borða lítið" virkaði of vel, ég var farin að sofa á miðnætti... ekki mikið úthald þar. sumir voru til 4, aðrir til 6, sumir voru í pottinum í 6 tíma samfleytt! en það var alveg gaman frá 19 - 24, svo var ég líka alveg eins og blóm þegar ég vaknaði eftir 12 tíma svefn, laus við alla þynnku og vesen... bjútífúl! ég fór með myndavélina mína, gekk svona líka rosa vel að taka myndir framan af kvöldi, eða þangað til ragnheiður fékk hana lánaða til myndatöku. ég hitti hana aftur eftir ca. 10 mínútur "ég eyddi öllum myndunum sem þú varst búin að taka... sorrí". ég var í hláturskasti, hvernig fór hún eiginlega að því? skil þetta ekki... "ar jú sjör jú vont tú dílít oll the piktsjörs?"... "jess"... "are you ríllí ríllí sjör?" "jess jess". engar myndir! hún fékk líka það verkefni að taka aðrar 20 myndir í staðinn. hún kom sér undan því með því að láta gunna fá hana sem tók 20 naflamyndir! kannski set ég saman getraun... hver-á-naflann-getraun... hver veit.
annars er ég bara á leiðinni í lokaverkefnið á morgun, fæ þá að vita hverjir verða með mér í hóp næstu 3 vikurnar... ég er ýkt spennt.

mánudagur, nóvember 25, 2002

ég er búin í prófum!
ég er á leiðinni í sumarbústað í húsafelli að fagna með samnemendum mínum og drekka öl að dönskum sið... ekki leiðinlegt það.

föstudagur, nóvember 22, 2002

Magnad, magnad, magnad!

Tónleikarnir med Coldplay í gærkvøldi voru allsavakalegir! Chris Martin, søngvari sveitarinnar, fór hamførum í spili og søng og er greinilega adal madurinn í bandinu. Their byrjudu á ad taka Politik og hvílílkur og annar eins kraftur, vá! Ég hefdi getad farid sáttur heim eftir thad eina lag. Svo ad tónleikunum loknum fórum vid stór hópur Íslendinga á barinn á Øreigasundskollegíinu. Thar var søtradur bjór og sungid kareoki eitthvad fram eftir. Hin besta skemmtun. Reyndar var frekar pínlegt og óhugnalegt ad hlusta á Kidda og Ingó misthyrma Duran Duran slagarnum "View to a kill".Their bættu thad svo upp thegar their, med minni adstod, sungu Willie Nelson útgáfu af "You are always on my mind".

Í kvøld ætla ég ad hitta Kanann Mike og Ítalann Aronne og vid ætalum og borda saman og svona. Svo á morgun er ég bodinn í hádegsmat med Heimi og Baldri vinnuféløgum úr LV og mat hjá Hjørdísi frænku um kvøldid. Nóg ad gera :) Svo ekk sé minnst á Man Utd - Newcastle á morgun!

Svo er víst Gullfoss og Geysis tjútt hér næsta føstudag... meira um thad sídar.
ég er alltaf á leiðinni að hreyfa mig e-ð, veit bara ekki hvað mig langar að gera nákvæmlega. ég nenni sko ekki í eróbikk eða e-ð soleiðis sprikl, prófaði það einu sinni... var eins og geirmundur valtýsson, taktlausasari en allt, prófa það sko ekki aftur. mér fannst rosa gaman í körfu- og handboltanum á sínum tíma, en það er erfitt að komast í soleiðis.

bjössi frændi hefur verið soldið í heimsókn upp á síðkastið og er voða spenntur að fá mig í taekwondo. hann er sko að þjálfa ármann og bjarkirnar, vildi endilega að ég kíkti á æfingu. mér finnst ég nú samt fullgömul til þess að vera að byrja að æfa e-ja íþrótt. "issss." og ég er rosalega stirrð í alla staði, nákvæmlega ekkert bendí. "gefðu mér 4 vikur." jæja... hvað er svona aðallega gert á þessum æfingum? "það eru alls konar styrktaræfingar, þolæfingar, rosa mikið teygt og kýlt og sparkað í púða. á 3 mánaða fresti er svo próf í því sem maður hefur lært." eftir fyrstu 3 mánuðina á maður víst að brjóta spýtu, pælið í því! það er samt alveg kúl finnst mér. ég sagði honum að það væri mjög langt síðan ég stundaði e-jar íþróttir og væri í því í engu formi. "það tekur mig 3 vikur að ná þér aftur í form." þá sagði ég honum frá því sem mér finnst eiginlega verst af öllu... það eru allir berfættir og markmiðið er að setja tærnar í hinn aðilann... helst sem næst andlitinu! það gæti ég ekki afborið, þyrfti áfallahjálp. "farðu til sálfræðings". þetta er alveg hrikalegt, ha.

annars sagði ég honum að ég skyldi hugsa um þetta og kannski reyna að plata e-n með mér. hefur e-r áhuga? þeir sem hafa hann ekki eru ýkt óheppnir sko, því við sem förum eigum eftir að...
...pota tánum í þá það sem eftir er... múhahaha...

fimmtudagur, nóvember 21, 2002

jei... hálfnuð í prófum!
búin með vélbúnað og hönnun og smíði hugbúnaðar... á því aðeins eftir hugbúnaðarfræði og reiknirit.
ég kann ekki ennþá að vera í prófum, þetta að hella sér í lestur og leiðindi, hef aldrei komist upp á lagið með það. hugsunarhátturinn hjá mér er alltaf og endalaust "þetta reddast". það hefur jú alltaf reddast en ég kvíði því að einn daginn gerir það það (?) ekki. sjónvarpið og ísskápurinn eru helstu óvinir mínir þessa dagana, ég virðist sækja mest í þetta í prófum... skrítið. grannar 2x á dag, spin city, með afa, popptíví... allt þetta verður svo spennandi og skemmtilegt. talandi um gott sjónvarpsefni, ég ætla sko ekki að láta herra ísland fram hjá mér fara í kvöld... það er alltaf fyndið. "fullkomin" afskökun fyrir að læra ekki... úje.

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Jæja nú er mér øllum lokid!!!

Thad var keyrt á mig í gær, takk fyrir. Ég var ad theysa heim úr skólanum á bleika blossanum, med ljósin á ad sjálfsøgdu, thegar ég tók eftir bíl sem ætladi ad beygja yfir hjólastíginn. Hann stoppadi thannig ég gerdi rád fyrir ad hann hefdi séd mig og hélt áfram. En thegar ég var alveg ad koma lulladi bíllinn af stad yfir stíginn. Ég reyndi ad skrensa til ad forda árekstri en rann bara á blautu mailbikinu og í thann mund sem ég fór fram hjá bílnum slóst afturdekkid í studarann og ég flaug í loft upp ásamt hjólinu. Vid endudum svo í einhverri klessu spølkorn frá bílnum. Ég stód upp og skodadi mig adeins og komst ad thví ad ég var nokkurn veginn í heilu lagi, bara rispad hné og ónýtar buxur. Svo kom konan á bílnum, skrúadi nidur rúduna og spurdi hvort ég væri í lagi. "Ja, det er i orden", sagdi ég án thess ad vita thad alveg sjálfur. Thá komu tveir kallar advífandi til ad athuga med mig og spurdu mig hvort hún hefdi keyrt á mig. Konan vard greinilega eitthvad óróleg thví hún skrúadi aftur upp í flýti og hypjadi sig burt. Thad var thá sem ég tók upp hjólid á ný og sá ad afturgjørdin var næstum thví í U. Helv. djø. maar. Búinn ad slátra tveimur hjólum á thremur mánudum! Jæja, kominn á strætó sem er í sjálfu sér ekki svo slæmt. Ég ætla nú samt ad gefa mér smá tíma í kvøld til ad reyna ad lappa upp á garminn, thetta reddast.

Svo er thad Coldplay á fimmtudaginn, gledi gledi :D

mánudagur, nóvember 18, 2002

ég er búin að nuða soldið í stebba um að senda mér ástarbréf... finnst það soldið fyndið. heyrðu, í dag kom bomban... minningargreinin um rut sigurðardóttur, sem eitt sinn var en nú er farin. hehehehe... ég var í hláturskasti. en þetta var samt alveg voða sætt... en aðallega fyndið samt. takk elsku stebbi... híhíhí.
það eru komnar myndir á síðunni hans hjalta úr köben luuuv partíinu um síðustu helgi. hvaða fólk er þetta eiginlega? ég þekki ekki helminginn þarna. ég þekki strákana, habbý, írisi, guðrúnu og ásdísi. annars er ég ekki að þekkja þetta lið. mér sýnist allir hafa verið í góðu stuði, það glansa a.m.k. vel í þeim augun...

föstudagur, nóvember 15, 2002

ég er komin heim!
flaug frá kóngsins köben á mánudaginn síðasta. það komu sko alveg tár þegar ég fór, það var svo yndislegt að vera þarna. nú er bara spurningin, hvenær fer ég næst og hvert.

ég kom bara ein heim, skildi stebba eftir í skókassanum, það var ekkert rosalega skemmtilegt. en það er bót í máli að ég er með alla hina, mömmu, pabba, krúið mitt... þ.a. mér leiðist ekkert svo mjög. svo byrja ég líka í prófum á þriðjudaginn næsta þ.a. það er nóg að gera hjá mér í lærdómnum, eða ætti a.m.k. að vera það. ég held alla vega að stebba leiðist meira en mér... ég fæ t.d. ósjaldan frekar skrítin sms eins og "ég var að skera chillí og boraði í nefið á mér, það var ekki gott." hehehehe, alveg fyndið... ábyggilega erfitt að vera svona mikið einn.

ég kom heim með 2 stappaðar ferðatöskur, prentara og heilt fjall af drasli í handfarangri. það er ekkert smá mikið sem fylgir manni. ég held að ég hafi pakkað nokkuð skynsamlega, notaði næstum öll fötin mín, og næstum alla skóna mína líka ;-)

mér finnst ég vera að missa af svo miklu. mánudaginn sem ég fór heim, fóru stebbi ásamt baldri, jóa og amagerdrengjunum á supergrass-tónleika, það hefði nú verið gaman að sjá þá, á miðvikudaginn var baldur svo að dj-a á stúdentahúsinu, ég var sko búin að bíða þvílíkt eftir því, hann ætlaði að spila gleðibankann, besta íslenska lag ever! svo í kvöld er köben luuuv partí á amager hjá þeim drengjum, því hafði ég líka beðið óþreyjufull eftir. ætli þetta hafi verið planað... hmmm...

"nei, ég ætla ekki að spila á stúdentahúsinu fyrr en rut er farin heim."
"nei, við skulum ekki halda köben luuuv fyrr en rut er farin heim."
"no, let's not play in copenhagen until rut has gone home."

það væri sko leiðinlegt!

það er hægt að fylgjast með undirbúningi köben luuuv partísins hér.
ég fer þá bara að læra... eða bara horfa á popptíví... rosalega er auðvelt að festast yfir því. það er svo lítið annað hægt að gera, nú þegar búið er að selja bílinn minn og soleiðis. hvað gerir fólk sem á ekki bíl eiginlega allan daginn? ég skil þetta ekki.
Bara láta áhugasama vita ad ég er búinn ad skipta um númer.

Stefán G. - 61704039

...já thetta er gamla hennar Rutar, hún átti svo mikla innistædu eftir : ).
Jesssssssssssss

Hildur snilli gat reddad sídunni okkar. Takk Hildur : ).

laugardagur, nóvember 09, 2002

Í gærkvöldi fórum við Rut út á Kastrup að ná í mömmu og pabba. Mjög gaman að hitta þau og kveðja til allra sem sendu okkur kveðju. Eftir að hafa snætt prýðis pizzu með Daða og Hjördísi ákváðum við að skella okkur í bæinn að prófa jólabjórinn. Ég, Rut, m&p röltum aðeins um og fundum loks laus sæti á einhverjum pöbb. Þar sátum við í góðu yfirlæti og drukkum þennan líka frábæra jólabjór, hlustuðum á gamlan feitan kall spila Kim Larsen á skemmtara og spjölluðum við nýja besta vin hans pabba. Eftir ölinn var bara haldið heim á leið.
Ég fékk smá pakka frá m&p og þar á meðal var nýi Sigur rósar diskurinn, (). Búinn að renna yfir hann og lýst bara vel á. Mæli sérstaklega með textunum!!! Je sæló!

sunnudagur, nóvember 03, 2002

en já, fyrst ég er vakandi og komin með smá leið á lærdómnum og japanir halda fyrir mér vöku, best að segja frá fimmtudeginum.
stefnan var tekin á stereobar, fimmtudagskvöld á stereobar hafa ekki klikkað hingað til. við skunduðum á lyngby station og biðum eftir lestinni niður í bæ. þar hittum við íslenska stelpu, hana tinnu sem er í lýðháskóla hér úti. við spjölluðum soldið, vorum aðallega að hlæja að því hvað það væri mikið af íslendingum í danmörku og það gengi eiginlega ekkert upp að vera að gera grín að fólki á íslensku því það væru alveg góðar líkur á því að viðkomandi skildi mann. jújú, held að allir hafi lent í soleiðis neyðarlegu atviki... ég a.m.k. þá segir hún okkur sögu af því þegar hún var með vinkonum sínum á diskótekinu vega um daginn og þær voru að gera grín að e-jum lúðum sem voru að reyna að kveikja í eldspýtu á skósólanum, en það heppnast ekki hjá þeim. þessi lýsing hljómaði ansi kunnuglega í eyrum okkar stebba, höfðum oft séð lúða reyna að kveikja á eldspýtu á skósólanum. "jájá, hvað segiru, hvernig litu þeir út?" spyrjum við. "æi, þetta voru e-jir verzlingar... ingó og e-ð soleiðis." say no more! við fengum bæði hrottalegt hláturskast. ok ísland er lítið, en vá... danmörk er það líka.
annars talaði hún sko bara vel um þá, fannst þetta bara lúðalegt með eldspýtuna og skósólann sko. ég hef séð þetta... bara fyndið.

svo fórum við á stereobar og hittum þar habbý, hildi, baldur og e-ja fleiri útlendinga... ú já eina norska stelpu sem heitir tuna... heheheh, ýkt fyndið að heita túnfiskur. tónlistin var reyndar soldið skrítin til að byrja með, lagaðist til muna þegar dj nanna byrjaði, þá dönsuðum við. ég er alveg á fullu á imesh núna að reyna að dánlóda dj-sessioninu hennar... gaman að því. þetta var hið besta kvöld, endaði í pizzu inni á eldhúsi að horfa á survivor 1 þátt. jei!
jeremías!

ég er ein heima. stebbi gat ekki lært og fór á wibrandtsvej til strákanna að drekka öl. ég er að læra. ég get lært.
nei!!!
það er TDC á hæðinni fyrir neðan okkur. TDC er franska og stendur fyrir tour de chambre eða e-ð soleiðis... ég kann ekki frönsku. þá er sem sagt rosalegt fyllerí á herbergjunum á ganginum sem stendur fyrir því. ferðast er á milli herbergja og í hverju herbergi þarf að drekka e-ð mjög sterkt. TDC-ið í okkar gangi var einmitt helgina sem við vorum í prag, misstum af því, en það þótt okkur frekar leiðinlegt.

alla vega...

litlu japanirnir á hæðinni fyrir neðan okkur eru nú að sletta úr klaufunum. annars held ég að þeir séu bara að öskra og hlusta á leiðinlega tónlist. ég er núna búin að hlusta á heilan britney spears disk í boði þeirra. þenkjúverrínæs. ég held að skiptingin á milli manna og kvenna sé svipuð, en samt heyrist bara í japanaköllunum syngja með og tralla... skrítið. þeir eru greinilega miklu meiri pjásur heldur en japanakonurnar. merkilegt hvað það er hlustað á leiðinlega tónlist hérna úti... svona upp til hópa að minnsta kosti. ég vona að þessi grjón helli bara í sig svo þau fari að sofna. það getur varla verið að svona lítið gult fólk þurfi að innbyrða mikið áfengi til þess að það sofni. helledusseda... þau eru farin að stappa og hoppa! þetta litla fólk... og öll þessi læti. ég segi nú bara eins og hún kristrún í hamravík... "ó ekkí".
já það er a.m.k. víst að ég er sko ekkert á leiðinni að fara að sofa... læra smá meira og svo sex and the city held ég bara, eina ferðina enn... klikkar ekki.