Meistari Jón Eggert fann allt í einu út að það væru Supergrass tónleikar hér í Köben þann 11. nóv. Þá var lítið annað að gera en að kaupa sér miða og bíða spenntur. Fylkingin samanstendur af mér, Jóni og Baldri og er hverjum sem er frjálst að slást í för. Til að hita upp er ekki úr vegi að skella sér hingað og hlusta á nýju plötuna þeirra onlæn.
fimmtudagur, október 31, 2002
Gleði, gleði!!!

þriðjudagur, október 29, 2002
roðni roðni roðni... ég er ennþá að roðna.
við vorum í sameiginlegum mat inni á eldhúsi rétt í þessu þar sem jesper og monika elduðu lasagne, mjög gott mjög gott. fatið fyrir framan okkur kláraðist og jesper kallar yfir til mín hvort okkur langi ekki í meira, nóg til. ég segi pent "nej tak", strýk á mér magann og segi svo "jeg er fuld". jájájájá... helledusseda... mín bara orðin full kl. 8 á þriðjudagskvöldi... haldiði að það sé nú!!! ég fattaði þetta um leið... "ómægot stebbi, ég sagði honum að ég væri full!" kjáninn sem ég get verið. held/vona að það hafi enginn heyrt þessa vitleysu, það hló a.m.k. enginn, kannski eru þau bara svona vel upp alin. það leiðinlega er að ég kann sko alveg að segja södd... það er sko medt. en neinei... ég var fuld.
[note to self: medt=södd, fuld=full]

mr. deeds er held ég leiðinlegasta mynd sem ég hef séð. man... hún er leiðinlegra en allt leiðinlegt. reyndar er steve buscemi algjör snillingur og mjög fyndinn í henni sem kreisí æs, viðurkenni að hafa argað úr hlátri... en allt hitt, rosalega leiðinlegt. við horfðum á alveg snilldarsjónvarpsefni á sunnudaginn þó. top 20 fashion disasters á vh1. þá var verið að spila myndbönd... já, með tísku-disaster. við vorum í hláturskasti. eitís-myndböndin réðu þar ríkjum, voru greinilega mestu disasterin. fyrir utan eitt myndband sem var mjög ofarlega, 5. sæti eða e-ð, það var fyrsta myndbandið sem spice girls gerðu... vá, þvílíkt disaster! í fyrsta sæti var cameo og öðru milli vanilli, algjör snilld. annars fannst mér cher eiginlega mesta disasterið þegar hún var í netasokkabuxum og bandi...
á sunnudaginn var þvottadagur hjá okkur, pöntuðum þvottavél klukkan 20:00. við ætluðum að elda lasagne og plönuðum kvöldið þannig að þegar maturinn færi inn í ofn þá ætluðum við að hlaupa niður og skella í 2 vélar og borða svo. þegar við værum búin að borða þá væru þvottavélarnar búnar að þvo og við gætum klárað, skellt í þurrkara og soleiðis. ofurskipulag hjá okkur... ofurskipulag. klukkan átta þegar við áttum þvottavélarnar skunduðum við niður með allan þvottinn okkar. heyrðu... þá var bara e-r bauni að troða í vélarnar okkar! við vorum svo feimin, þorðum ekki að segja neitt, þóttumst bara vera að lesa auglýsingarnar á veggjunum og soleiðis... iiiiiii, eins og fólk komi e-ð þangað niður til þess. svo fór bauninn og við soldið ringluð... hvað meinti hann eiginlega með þessu, að stela þvottavélunum okkar? allt í einu varð okkur litið á klukkuna á veggnum... þá var hún ekki nema sjö! heyrðu... þá hafði tímanum verið breytt um nóttina, allt í einu var klukkutíma bara bætt við. það er ekki verið að láta mann vita ha! algjör skandall. það ætti að vera e-r svona tilkynningarskylda sem sæi um svona. það sást ekki tilkynning um þetta í neinu blaði eða flettiskyltum. er þetta kannski dagsetning sem er stimpluð inn í dani eins og 17. júní hjá okkur? þá finnst mér a.m.k. að dagurinn mætti vera soldið meira áberandi. við drösluðumst aftur upp með þvottinn okkar, þurftum að breyta öllu skipulaginu... man! þessi tímabreytinginn fór alveg með mig, varð svo rosalega þreytt og ónýt e-ð, búin að sofa yfir mig síðan... sjoooor. hvernig fara svona tímabreytingar eiginlega fram? ég vildi að ég hefði vitað meira um þetta og gert mér grein fyrir þessu á meðan þessu stóð. fyndið að ætla kannski að gera e-ð klukkan tólf og klukkan þá bara allt í einu orðin 11... eða e-ð.
akkuru er ég eiginlega alltaf að segja leiðinlegar þvottasögur?

sunnudagur, október 27, 2002
Því er við að bæta að ég átti afbrags innkomu á bjórtennismótið. Tapaði reyndar fyrsta leiknum en eftir það var ég á sigurbraut og komst alla leið í fjórðungsúrslit. Þar tapaði ég fyrir gaur sem hefur æft borðtennis og m.a. unnið sjálfan Guðmund Stephensen! En afbragðs kvöld sem endaði svo heima í pizzu og sjónvarpsglápi.
laugardagur, október 26, 2002
jæjajæjajæja...
það er búið að vera roooooosalega mikið að gera.
hvar á ég að byrja?
fimmtudagurinn fyrir viku:
ok... ingó kom í mat til okkar og við elduðum spæsí-brazilían-kjúklingaréttinn okkar fræga. bragðlaukarnir í stebba dóu akkúrat þegar hann var að lava sósuna (leiðinlegt), og e-ð varð þess valdandi að hann gat ekki hætt að setja tjillí í hana. sósan var mjög góð sko, en við áttum í mestu vandræðum með að borða hana þar sem við breyttumst öll í pamelu á svipstundu, varirnar á okkur urðu svo þrútnar af öllu þessu tjillí. minna tjillí næst. þetta bjargaðist nú allt saman þar sem við áttum nægan bjór til þess að drekka með. eftir matinn blönduðum við hvítan rússa, alveg fullt af honum! ingó leist ágætlega á íbúðina okkar held ég, en það sem honum fannst mest til koma var maturinn sem við áttum. "hva... bara uncle ben's! það er ekkert verið að spara. iiiiiiiii, og heinz tómatsósa! það eru aldeilis flottheitin!" jújú, ekkert smá snobbuð mar... hehehe. þeir kaupa held ég aldrei það besta, mér skilst að reglan þar sér "alltaf það næstbesta". tæt butsjett... jess jess. eftir tjillíát og rússadrykkju þá héldum við á stereobar og hittum þar habbý, hildi og evu, stelpur sem ingó þekkir. það var alveg brill, dönsuðum sem aldrei fyrr. við erum alveg á leiðinni að dánlóda dj-sessjoninu hennar dj nönnu. mest kúl daninn sem við höfum séð. stelpurnar buðu okkur svo í innflutningspartí sem var á laugardaginn... hressar þessar stelpur.
laugardagurinn fyrir viku:
ingó bauð okkur í pizzu... hann bakar sko botninn sjálfur og allt! skoluðum henni niður með öl og viti menn, hvítur rússi í desert. fórum svo í innflutningspartí hjá stelpunum. partíið var mjög alþjóðlegt og mjög skemmtilegt. það var mikið um sérstaka karaktera, og var ég oft á tíðum í hláturskasti. fólk getur verið með svo fyndið hár!!! jájá. ingó var e-ð tregur til að fara heim, því eins og hann sagði sjálfur svo vel "jeg bor alene i et stort spögelsehus og der er store lodne edderkopper der!" held að hann hafi samt hætt sér heim fyrir rest. hann lenti víst í e-rri kóngulóarkrísu og hann hræðist drauga. seisei. gott kvöld, hittum vonandi stelpurnar oftar.
mánudagurinn:
fórum á sigur rósar tónleika ásamt kananum mike. alveg merkilegt... ef þú ert í útlöndum og vilt hitta íslendinga... farðu á sigur rósar tónleika! ég heyrði íslensku alls staðar, það var a.m.k. fifftí-fifftí. eins og einn góður íslendingur sagði "þetta er bara eins og á þorrablóti hérna!". jújú, alveg satt. en sigur rós klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. mér finnst alltaf endirinn skemmtilegastur, þessi flotti sigur rósar endir... það er rosalegt uplevelse... engin smá gæsahúð. en strákarnir voru bara sætir eins og alltaf, og það er alltaf eins og þeir séu jafnhissa á þessari frægð sem þeir hafa... mér finnst það alltaf svo skemmtilegt. ég fór að spá á tónleikunum... hvað er málið eiginlega með það að fara alltaf í hljómsveitarbolum, eða frekar svona tónleikabolum á tónleika? það þarf sko ekkert að vera bolur með hljómsveitinni sem þú ert að hlusta á... neinei... bara e-rri hljómsveit. alveg fyndið. ein kona var í rem-bol frá því á e-jum green túr sem þeir fóru víst í e-n tímann '95 eða e-ð. það var alveg fullt af svona fólki. ok... "fyrst ég er á tónleikum, best að sýna það að ég hafi farið á tónleika áður". a ha... einmitt. ég var nú bara í hláturskasti yfir þessu. alltílæ. en við fórum sátt af tónleikunum. nýr diskur skilst mér í næsta mánuði... eða hvað? allir að fá sér hann.
vikan:
búin að vera frekar strembin. brjáluð verkefnavinna... mjög löng seta við tölvuna... mikil þreyta. ég verðlaunaði mig því með því að fara ásamt stibba á bjórtennismót í gær.
föstudagur:
fórum á bjórtennismót á vegum íslendingafélagsins í dtu. ok... vissi ekki nákvæmlega hvað þetta var, nema það að þar yrði drukkinn bjór. svo er það bara klukkutíma fyrir brottför að stibbi segir mér að skella mér í borðtennisgallann... "við erum að fara að spila borðtennis.". jæjajæja... þetta hafði ég ekki hugmynd um. ég var sem sagt að fara að keppa á borðtennismóti og drekka bjór... alltíeinu! "seisei" hugsaði ég með mér fyrst, en vá! þvílík snilldarhugmynd... bjórtennismót! með því fyndnara sem ég hef tekið þátt í. ég var að vísu rosa léleg, hef aldrei spilað borðtennis, tapaði því mínum riðli. en ég heyrði því fleygt að ég hafi verið í mjöööööög sterkum riðli, hvort sem það var satt eða ekki. að venju er ég vægast sagt tapsár, en ég held að bjórinn hafi aðeins mýkt mig og ég fann næstum ekki fyrir tapsæri. góður bjórinn ha! eftir mótið héldum við á dtu-barinn þar sem var læf músík, e-ð brjálað diskóband að spila... enn og aftur, ég í hláturskasti! jeminnjeminn. þetta var hin mesta skemmtan. frábært kvöld þetta.
í dag:
ég fattaði það að það eru rúmar 2 vikur þangað til ég fer heim og ég er (nær) ekkert búin að versla síðan ég kom hingað. hei! best að eyða erlendu kreditkortaheimildinni minni! jájá, við fórum niður í bæ og versluðum. ég er nú buxum, skóm (supplæs supplæs), trefli og sokkum ríkari. stebbi tveimur skyrtum. rákumst svo á jón og stebba jóns... iiiii, eins og þeir séu hjón eða feðgar eða e-ð... horfðum á arsenal-blackburn og fengum okkur svo feitan kfc. núna erum við í hinu mesta letikasti, ætlum inn á eldhús og horfa á mr. deeds eða the big lebowski og borða rittersport... það er b.t.w. alltaf á svona pakkatilboði hérna í danmörku. stebbi er alltaf að gera grín að mömmu sinni að ef e-ð er á tilboði þá kaupir hún það alltaf... ég meina, mamma mín líka, og bara allar mömmur held ég... en málið er að stebbi er alveg nákvæmlega eins, tilboðssjúkur! heheheh.
við tókum myndir á fimmtudag, laugardag, mánudag og í gær. þær koma inn bráðum, eða þegar við nennum. tjá.

laugardagur, október 19, 2002
He he... Rut missti sokkana sína ofan í klósettið þegar hún kom úr sturtu... kjáni : ) Já bæ ðe vei þá eru klósettsetur taldar ónausynlegar í Danaveldi sem útskýrir kannski sokka-dæmið hennar Rutar.
föstudagur, október 18, 2002
hefði ég verið á þessum leik þá hefði þessi flaska pottþétt farið í hausinn á mér.
þetta byrjaði allt þegar ég var u.þ.b. 16 ára á sveitaballi og e-r kjáni henti flösku upp í loft og hún lenti í hausnum á mér. ég vankaðist smá, en brosti svo bara að þessu, ég meina... what are the odds! ég man einmitt eftir því að hafa sagt við stelpurnar að ég væri með þessu búin að koma í veg fyrir það að ég fengi e-n tímann aftur flösku í höfuðið og ábyggilega líka að nokkur af þeim fengi flösku í höfuðið, mér fannst líkurnar á þessu bara svo litlar. en nei... síðan þarna þá er eins og ég sé e-ð skotmark fyrir kjána sem kasta flöskum til himins... þær virðast bara allar lenda á hausnum á mér! æm not kidding jú! ég þekki ekki neinn annan sem hefur fengið flösku í höfuðið, hvað er málið? á þjóðhátíð eitt árið fékk ég botninn á plastflösku svo fast í ennið að ég endasentist yfir alla brekkuna og rotaðist... það var sko ekki falleg sjón. einu sinni var flaska brotin á hausnum á mér... svona gæti ég haldið endalaust áfram. einu sinni varð þetta svo slæmt að ekki nóg með að fá flöskur í hausinn þá var ég líka farin að lenda undir fuglaskít... jújú, ef fugl kúkaði á flugi, þá lenti það ýmist á bílnum mínum eða hausnum á mér. þetta var frekar leiðinlegur tími.
ú, ég fékk líka einu sinni remolaði í hausinn.
en fólk, hættiði að henda flöskum til himins!

miðvikudagur, október 16, 2002
ótrúlegt! stebbi var kominn með svo mikinn lubba og þurfti að fara í klippingu. þar sem það er mjög dýrt að fara í klippingu í danmörku þá ákvað ég bara að klippa hann. ég meina, þetta er bara hár, það vex. alltílæ. þetta kom líka svona rosa vel út, þessi fíni eipari bara! er ég á rangri hillu í lífinu? stibbi var samt soldið smeykur á meðan á klippingunni stóð, hélt að þetta yrði kannski eins og þegar hildur systir hans klippti hann... það vildi hann sko ekki... hehehe.
ú... við sáum íkorna í gær.
ú... við sáum íkorna í gær.
Já fólk virðist hafa gaman af því að skoða myndir að því sem gerist hér í Köben. Og ég vil ekki heyra neitt væl um þær sé einhæfar og bara af mér og Rut. Það er fullt af öðru fólki á þessum myndum... Kíkja á myndirnar.
þriðjudagur, október 15, 2002
En meira vei samt
Ég vaknaði eldsnemma í gærmorgun til að komast í tölvuna á undan Rut. Þannig var að það er búið að færa Coldplay tónleikana, sem verða hér í Köben 21. nóv, í stærri höll og það átti að byrja sala á auka miðum bræt end örlí. Og mér tókst að ná í nokkur stykki, mér og Amager-hagfræðiflónunum til mikillar ánægju. Vei vei vei, alltaf gaman á tónleikum, ú sem minnir mig á Sigur Rós næsta mánudag : )

Jæja þá er kominn tími til að segja frá laugardeginum.
Þetta stefndi í að verða hinn fullkomni laugardagur, tveir fótboltaleikir og planið að kíkja á kaffihús eftir allt saman. Við Rut fórum niðrí bæ um miðjan dag og þrömmuðum á sportpúbbinn John Bull. Þar hittum við fyrir heilan helling af Íslendingum sem ætluðu að fylgjast með leiknum Ísland - Skotland. Þetta átti bara að verða auðveldur leikur og öruggur sigur, eginlega upphitum fyrir leikinn á Parken um kvöldið. Ég tilti mér niður með ódýran bjór í hönd og horfi glottandi á þessar fáu, en háværu, skosku hræður sem voru einnig mættar til að fylgjast með leiknum. En ég gjörsamlega missti hökuna í gólfið á 7. mínútu eða svo og við vitum öll hvernig þessi bölvaði leikur endaði. Svei sé Atla Eðvaldss. og svei sé ljóta Englendingnum á púbbnum sem var með stæla!
En jæja, ég, Rut, Ásta og Jenni gleymdum þessu sem fyrst, tróðum í okkur einum McDonalds og héldum á Parken. Og hvílíkt og annað eins! Danir kunna sko að skemmta sér á leikjum. Þeir sungu og trölluðu allan tímann og tóku bylgjur sem fóru 4-5 hringi kringum völlinn! Þetta var alveg frábært. Leikurinn endaði svo með 2-0 sigri Danmerkur en hefði auðveldlega getað verið mun stærri. Eini gallinn var að það var svo bölvanlega kalt að ég fékk kul á bæði fingur og tær. Svo var náttúrulega ekkert hægt að kaupa heitt að drekka til að ylja sér, bara öl og pulsur! Jæja ég fæ þá bara eina pulsu og einn öl... : ). Svo kíktum við á púbb, fengum okkur smá bjór og tókum svo næturstrætó heim. Hið ágætasta kvöld og nokkrar myndir... sem koma kannski seinna.

föstudagur, október 11, 2002
pæling: akkuru dansa hommar miklu betur heldur en ekki hommar?
og annað... það komu nokkrir íslendingar á steriobar í gær, m.a. djúpa-laugar-gellan þórey. er hún og frikki weis hætt saman eða var þetta bara bull frá upphafi til enda? maður má ekki detta algjörlega út úr íslenska séð og heyrt slúðrinu... (",)

baldur var í sambandi við okkur í gær og sagði okkur að hann væri að fara á steriobar ásamt nokkrum útlendingavinum sínum, bauð okkur að koma líka. langt síðan við fórum út á lífið, skelltum okkur því. á steriobar hittum við fyrst adda sem var þar með e-rri íslenskri vinkonu sinni. það hvílir greinilega e-r bölvun á honum því tösku stelpunnar var stolið! þ.a. þetta var smá deisjavú... við að öll að leita að týndri tösku.
[note to self: ekki fara með tösku á djammið með adda]
svo loksins kom baldur... það var víst e-ð erfitt að yfirgefa áfengið og íslenska hákarlinn heima... óskiljanlegt! við skelltum okkur öll á neðri hæðina þar sem 2 plötusnúðar voru að spila... algjörir snillingar! loksins, loksins... heví kúl staður, sem spilaði alveg heeeeeví kúl tónlist. tek til baka öll þau skipti sem ég hef sagt að danir hafi lélegan tónlistarsmekk, því það var sko ekkert að tónlistarsmekknum hjá þessum baunum. það er mjööööög langt síðan ég dansaði svona mikið... alveg brill! ég hugsaði mikið til rástu þegar common people var spilað... ragnheiður, við vorum langflottastar! hehehe.
baldur, þú ert algjör snillingur að draga okkur þangað... þetta verður sko planið næstu fimmtudaga, þangað til ég fer heim... eftir mánuð! úffff, hvað tíminn líður hratt, alltof hratt.

ég held að hildi hafi tekist að finna fyndnustu síðu heims... eða það sem hún gerir er a.m.k. fyndnast í heimi.
þetta er e.k. túlkur... síða sem þýðir síðuna þína eða bara hverja sem er frá einu tungumáli yfir á annað.
ég snaraði minni yfir á ensku... mæ ó mæ! ég og stibbi, a.k.a. refrain, erum búin að liggja í hláturskasti yfir þessari þýðingu, ásamt fleirum reyndar. stefán þýðist sem refrain, ásta er practise, baldur er mayweed, og á, sögnin að eiga, er alltaf þýdd sem river. heheheheheh... hvers vegna er "að" alltaf þýtt með "snuggle"? man! þetta er sko alveg fyndnast!
þið veeeeerðið að kíkja á þetta!
hildur... hvernig rambaru inn á svona síður eiginlega?

fimmtudagur, október 10, 2002
Beibí löv!!!
Ég var rétt í þessu að kaupa miða á landsleik Dana og Lúxemborgara á Parken næsta laugardag. Við Rut erum búin að vera að velta þessu svoldið fyrir okkur en ekki fundið neinn til að plata með. En svo höfðum við samband við Ástu og Jens og þeim leist svona líka vel á þetta. Þannig ég hringdi í billetnet.dk og keypti fjóra miða, einhversstaðar lengst upp í horni fyrir aftan annað markið. En það er aukaatriði, við erum á leið á Parkan :D. Nú vantar bara danskan landsliðsbúning (mamma ef þú vilt gefa mér afmælisgjöf fyrir tímann þá er þetta kjörið tækifæri) og að æfa sönginn... Vi er røde, vi er hvide, vi står sammen...

loksins loksins... myndir af hjólunum okkar komnar á netið... ásamt fleiri myndum.
skoða myndir...
mér finnst voða gaman þegar fólk kommentar... hehe :-S

jæja, tímamót í mínu lífi... bíllinn minn hefur verið seldur! buuuuhuuuuu...
þetta var svo frábær bíll, ég dýrkaði hann. nú er ég sem sagt bíllaus og verð að nýta mér almenningssamgöngur eins og lestar og strætó. það er svo sem í fínu lagi hér í danaveldi, en sjitt þegar ég kem heim... "græna kortið, takk" það verður ömó!
ég er búin að eiga bíl síðan ég var 18 ára, það er hægara sagt en gert að hætta því bara allt í einu og fara að taka strætó reglulega... ég hef mjöööög mikla andúð á þessum ferðamáta.
leiðinlegt að vakna kannski snemma morguns um vetur og þurfa að fara út til þess að bíða eftir strætó og það að miða öll tímaplön við það hvenær strætó kemur og fer. nei, þetta mun ekki ganga, ég sé það núna... ég kaupi mér bíl fljótlega eftir að ég kem heim... það er hér með ákveðið!

núna ætti mamma að vera í flugvél á leiðinni til prag. skrítið... ég var í prag fyrir 4 dögum síðan, ýkt leiðinlegt að rétt missa svona af henni. en ég er búin að gefa henni svona tips um hvað hún eigi að gera... ýtk vön ha! ég sagði henni að kíkja á 3 staði... karlsbrúna, mucha og cream & dream, en þar fengum við besta ís heims... ömmmm.
elsku mamma, skemmtu þér sem allra allra best í prag og passaðu þig á vasaþjófum og óðum sölumönnum (",)

miðvikudagur, október 09, 2002
ég og stebbi fengu flugu í höfuðið í gær. förum í helgarferð til london með go, það er svo ódýrt! við urðum geðveikt spennt og fórum beint á www.go-fly.com og leituðum að ódýrri ferð. planið var sko að fara þá út núna á fimmtudaginn og koma heim jafnvel á mánudaginn. það er ódýrt að fljúga heim á mánudaginn en dýrt að fljúga út á fimmtudaginn (eða ca. 15 þús isk... sem er lítið, en samt mikið :-S), þ.a. þetta hentaði okkur ekki... sem betur fer!!! stundarbrjálæðið, mar! nýkomin heim frá prag... fyrir utan það að vera í útlöndum! man... en ég er alveg komin með bakteríuna, langar að ferðast út um allt. næstu staðir sem mig langar að heimsækja eru ítalía, new york, parís og svo e-ð asíuland, það er ábyggilega ýkt spennó. það er bara svo dýrt að ferðast frá íslandi. ef ég ætti t.d. heima hér í danmörku þá væri ég á sífelldu ferðalagi... hér er þér borgað fyrir að vera námsmaður og að ferðast kostar skid og ingenting. ég eeeeelska danmörk!
þriðjudagur, október 08, 2002
já nú er sko gott að vera með kanínusokkana sem amma gaf mér áður en ég fór út. það er nebblega skítakuldi hérna og enginn hiti kominn á ofnana. ég segi nú bara eins og hún maya á 225 "hvad tænker de på!". ég var líka svo heppin að ná í e-n tékkneskan skít og hef lagst í kvef og vesen. er að reyna að koma mér aftur í lærigírinn... ekki búin að læra neitt í viku! ég er sko ekki að vinna við kjöraðstæður, þ.a. sofa út er rosa gott.
er núna að bíða eftir stibba, hann ætti að koma heim úr skólanum hvað og hverju, við ætlum nebblega að elda hvítt pasta í kvöld. hvítt pasta er einn af þeim réttum sem við erum orðnir ólympíumeistarar í að elda. meðal annarra rétta má helst nefna mexíkóskt og heimatilbúna pizzu... vá, við gerum sko bestu pizzu heims! þið fáið að smakka þegar við komum heim, bjóðum heim í pizzu og bjór... ömmm... ég er strax farin að hlakka til.
best að fara í peysu og rembast við lærdóminn, er nebblega að vinna soldið mikið upp eftir prag-fríið góða.

sunnudagur, október 06, 2002
fyrstu myndirnar sem við tókum á nýju myndavélina okkar komnar á vefinn... jei! þær bera þess reyndar merki að við erum ennþá að læra á vélina... margar hverjar ekki alveg í fókus... en það er aukaatriði! við lofum að næstu myndir verða flottari og við lofum að vera dugleg að taka myndir og setja á vefinn. hver veit nema það verði líka fleiri en bara við á næstu myndum... hehehe.
skoða myndir...
skoða myndir...
jæja... komin heim... heil á húfi, eftir aðeins... já aðeins 15 tíma rútuferð. 6 klukkutímum sneggri heldur en á leiðinni til prag. gott að vera komin aftur á íslenskt lyklaborð.
við skoðuðum allt sem við mögulega gátum á þessum stutta tíma sem við höfðum... það var svo mikið að sjá. við teljum okkur hafa skoðað öll merkustu mannvirkin í miðbæ prag. þar má helst nefna klukkuna með lærisveinunum á gamla torgi, prag kastala, þjóðmynjasafnið og karlsbrúna sem var í mestu uppáhaldi hjá okkur. rosalega skemmtilegt að labba þar, bæði um dag og kvöld. hljómar kannski ekki mjög spennandi að labba yfir brú... en það var alveg magnað! skoðuðum mucha safnið, en alphonse mucha var upphafsmaður art nouveau og teiknaði og málaði rosalega mikið af fallegum myndum, aðallega af konum. skemmtum okkur mjööööög vel þar og keyptum plaggöt og nælur í mucha-búðinni... sannir túrhestar þar á ferð. við skoðuðum líka franz kafka safnið, en okkur þótti ekkert mjög mikið til þess koma... ágætt samt. svo skoðuðum við líka digital myndavélar... endaði með því að við keyptum eina slíka, jei! nú fara sko að koma myndir af okkur stebba í útlöndum... hehehe.
verðlagið þarna er alveg hlægilegt, vorum alltaf úti að borða fyrir skid og ingen ting. tékkneski bjórinn var víst fínn... annars finnst mér allur bjór eins :-S smökkuðum besta ís heims, merkilegt að hann skuli finnast í prag.
eins og prag er yndislega falleg borg þá er hún gegnsósa af túristum, eini iðnaðurinn sem þrífst í gamla bænum eru veitingastaðir og sorpmynjagripabúðir sem selja allar sama draslið... babúskur, kristalsdót, falsaða fótboltaboli, ljótustu húfur heims og prag-stuttermaboli. tékkarnir beittu ýmsum sölutrixum... stebbi lenti tvisvar sinnum í sama óða sölumanninum sem öskraði í sífellu á eftir honum "you sweden?" eins og það virki e-ð!
það er líkt og að í tékklandi hafa ekki verið prentuð dagatöl eftir 1983, alla vega bera klæðnaðurinn og tónlistarsmekkurinn þess merki... herðapúðar og eiparar eru í hávegum hafðir. að vísu er tónlistin aðeins öpp-tú-deit, en það er aðeins af hinu verra... shakira og europop er innnnn. undir lokin fórum við reyndar að heyra skemmtilega tónlist eins og "dancing on the ceiling" með lionel ritchie og fleiri eitís-smelli.
fórum reyndar einu sinni og hlustuðum á góða tónlist. stebbi var að kenna mér að hlusta á jazz og fórum við því á jazzklúbbinn reduta og hlustuðum þar á "bohemian big band". okkur þótti það mjög skemmtilegt og var ég mest skotin í trommaranum. eins og e-rjir gætu kannski giskað á, þá var það vegna þess að hann var langelstur og langgráhærðastur... ýkt sætur! hann var a.m.k. sjötugur en langmesti stuðboltinn í bandinu. á þessum merka klúbbi, árið 1993, tróð bill clinton einmitt upp með forseta tékklands, bill á saxafóninn og tékklandsforseti á trompet. þar drukkum við líka versta hvítvín heims... en það er leiðinleg saga.
eins og það var yndislegt að vera í prag, þá fannst okkur líka alveg yndislegt að koma "heim" til danmerkur... heim í rúmið okkar og stóru sængina. ég var líka farin að sakna tölvunnar minnar.
við erum orðnir svo miklir heimsborgarar!!!

fimmtudagur, október 03, 2002
vorum voda dugleg ad skoda prag i gaer. vid hofum komist ad thvi ad prag er fallegasta borg sem vid hofum sed... vid erum kannski ekki mjog von... en va! thad er allt svo flott!!! allar byggingarnar og allt bara. nema reyndar tekkarnir, mer finnst their frekar ulekkert folk, en abyggilega mjog gott folk samt... nema vasathjofarnir. hofumn tho ekkert ordid vor vid tha... 7, 9, 13. svo er oft rosalega erfitt ad tala vid tha, fair sem tala ensku, og enn faerri sem tala hana vel. vid hofum komist ad thvi hvers vegna thad er. thad er allt thytt fyrir tha... allt! allt sjonvarpsefni er dobbad, og vid forum inn i bokabud adan, aetladi ad athuga med eina tolvubok sem eg tharf ad kaupa. ekki nog med thad ad tolva er ekki computer eda neitt likt thvi, heldur eru allar baekur... ALLAR... a tjekknesku. duglegir i thessu, tjekkarnir => afar lelegir i ensku.
forum i gaer a safn, vorum rosa menningarleg... eda thannig... thetta var sko konguloasafn. skodudum alls kyns kongulaer og sporddreka og margfaetlur, mjog flottar margar hverjar. vid sogdum samt voda mikid "ooooj" og ulludum, held ad starfsmadurinn hafi ordid soldid sar, kongulaernar virtust vera bestu vinir hans. okkur fannst eiginlega verst ad thad vantadi kongulo i tvo bur og einn sporddreka... thaer hofdu pottthett sloppid! vid fengum rosa hroll. eg fekk m.a. kroniskan hroll i efri hluta haegri rasskinnarinnar og hann losnadi eg ekki vid fyrr en komid var upp i rum i kaetunni okkar. skritid! stebbi var samt meiri tepra en eg. eg matti hvergi pota i hann tha fekk hann hroll, helt thad vaeri kongulo. seisei.
svo lobbudum vid yfir karlsbruna sem var alveg rosalega fallegt, fengum okkur ol og tokum svo tram-id heim.
i dag erum vid bara ad labba og skoda meira, thad er sko endalaust haegt ad skoda herna. vid erum lika i rosalegum turhestaleik, sem er frabaert.
vid erum ekkert buin ad hringja heim... erum enntha ad leita ad klinksima. en thad er sem sagt i lagi med okkur. kvedja fra prag til islands.
baejo smaejo.

miðvikudagur, október 02, 2002
tha erum vid komin til prag. orstutt um 1. daginn:
rutuferdin var samtals 21 klukkutimi... baedi med allverulegt rasssaeri og halsrig. ferdin byrjadi agaetlega nema rut var strax mal ad pissa (thvi eg vissi ad eg gaeti thad ekki naestu 4 klukkutimana) og var thad thannig mestalla ferdina... alltaf alveg i spreng :-( vid vorum yngstu farthegarnir, ferdafelagarnir voru flestir komnir yfir fimmtugsaldurinn, thratt fyrir ad tveimur kellum taekist ad haga ser eins og 13 ara gelgjur... otholandi. forum med ofurferju fra mon yfir til thyskalands asamt fleiri rutum og heilli lest! enginn herjolfur thar a ferd. thegar til thyskalands var komid breyttist rutan sem transformerskall i gistiheimili a fjorum hjolum og their sem voru med pantad gistiplass fengu ad leggja sig. en thar sem vid erum svo miklir naglar akvadum vid ad vid thyrftum ekkert soleidis og svafum thvi i e-rri klessu... erum soldid stif i dag. thegar vid komum ad landamaerum tekklands vard einn svo oheppinn ad verda eftir... hafdi nebblega gleymt ad endurnyja passann sinn. ykt leidinlegt fyrir hann. bilstjorinn okkar var lika frekar villtur og for alls kyns krokaleidir og uturdura... thurfti m.a.s. einu sinni ad snua vid eftir halftima keyrslu um thyska sveitavegi i nagrenni dresden.
ad lokum komumst vid a leidarenda, eftir mikinn runt um prag, og ad hotelinu okkar... eda... thetta er eiginlega ekki hotel... og ekki motel heldur... thetta er nebblega eignlega batur og th.a.l. botel!!! vid fengum ostodvandi hlaturskast thegar vid saum thad. en vid erum alla vega med rosalega fallegt utsyni yfir molda... erum a henni!!!
jaeja... best ad koma ser til baka i kaetuna okkar. vonandi meira a morgun.
ble ble.

þriðjudagur, október 01, 2002
Jæja, kominn tími til að leggja í 'ann. Ætlum að hendast út á Lyngby station og þaðan með lest til Ellebjerg þar sem Sunnytours rúturnar bíða okkar. Það er eins gott að þetta séu einhverjar ofurrútur með lazyboy sætum og rassnuddi því annars á ég örugglega eftir að fá legusár. Púff, hvað gerir maður í 18 tíma rútuferð? Ég held að frúin í Hamborg sé alveg out, kannski sýna þeir leikinn í Champions league í kvöld!!! Aldrei að vita nema við römbum inn á netkaffi í Prag. Þið bara bíðið spennt, ble ble (",)