miðvikudagur, júlí 31, 2002

úfffffff... var allt of lengi í mat. ég varð fyrir því að kaupa mér skó... tvenna skó... tvenna rauða skó! ég hef nákvæmlega enga sjálfsstjórn!
mér finnst þetta alveg brilliant! vildi að ég hefði gert þetta e-n tímann, mér finnst þetta svo fyndið.

þriðjudagur, júlí 30, 2002

ojjjjjjjjjj... ógó.

[you are a barfing pumpkin]
What Really Weird Thingy Are You? Find out @ blackhole

ég, ásamt fjórum öðrum konum, fékk sendan póst áðan á vinnunetfangið mitt frá Hafrúnu Sigurðardóttur með subjectið "hey beautiful!". þetta var sem sagt bréf til okkar fimm kvenna sem sagði að við værum svo bjútífúl. gaman gaman... en hver er þessi hafrún eiginlega? ætli hún sé sjúk í mig? ég segi bara eins og ákveðinn hópur stráka sem ég þekki... "þær eru það allar!" hehehe.

mánudagur, júlí 29, 2002

vissuð þið að það má segja bæði augabrúnir, augnabrúnir og augabrýr? svo má skrifa egypskur og egifskur, peysa og peisa, typpi og tippi, milljón og miljón, hinum megin og hinumegin, orrusta og orusta. orðið vættur má vera bæði í karlkyni og kvenkyni, eins með orðið saft, regnskúr og teiti. fyndið... eða...? þessir fróðleiksmolar eru í boði jóns.
man! hvernig kemst randafluga sem er ábyggilega 74 kíló upp á 7. hæð?!?!? út með drusluna!
ólöf var full á laugardaginn og spjallaði við ara klæng, sem er einmitt hraðri uppleið eftir stjörnuleik sinn í nýjasta myndbandi í svörtum fötum. hann er að vinna við gerð nýju stellu-myndarinnar, stella í framboði. ólöf var að framapotast og ætlaði að athuga hvort það vantaði ekki sæta stelpu með rautt krullað hár. hún benti ara á fyrri afrek í leiklistinni... "ég hef leikið í glímumynd!". ég dó úr hlátri. "ég lék í heimildarmynd um íslensku glímuna". hún hætti ekki! ég andaðist gjörsamlega úr hlátri. hún er alveg yndisleg hún ólöf. hún var sko einu sinni að æfa glímu og var alveg heví góð, á medalíur og allt. hversu kúl er það að æfa glímu? hehehe. en ólöf, "akkuru hættiru í glímunni?". man! hehehehehehe...
ég hef endurheimt frauka minn frá útlöndum... jei.

föstudagur, júlí 26, 2002

fólk getur verið svo heimskt. það var víst einn sem var á útsölu nanoq áðan, sem leist sona helvíti vel á prímus sem var þarna, ábyggilega á þessum líka fína afslætti. heyrðu... hann vildi prófa'nn, og kveikti á honum! og í leiðinni í e-ju öðru sem var þarna líka á útsölu! ómægot! pípúl, pípúl...
fór niður í nanoq áðan á útsölu dauðans. fór sko á slaginu 2 þegar útsalan átti að hefjast, ásamt öllu hinu fólkinu sem hugsaði eins og ég. eftir að hafa verið þarna inni í 2 mínútur og látið labba á mig hægri vinstri, stakk ég af. þetta er greinilega "löbbum-á-rut"-dagur. ég bara höndla ekki svona. ég vil geta labbað á mínum hraða, að það sé enginn fyrir mér, aldrei, og skoðað það sem ég vil. ég var ekki að fá þessar óskir uppfylltar þarna inni. það var líka erfitt að forðast myndavélarnar (bæði sjónvarps- og blaða). ég vildi ekki vera ein af þessu heimska fólki sem kemur alltaf í sjónvarpinu þegar e-ð svona er að opna, bt og soleiðis. samt var ég það algjörlega... en ég vil það ekki... neinei.
fór í staðinn í eymundsson og las séð og heyrt. ef þið hafið e-n tímann velt því fyrir ykkur hvar hemmi gunn væri staddur í heiminum (eins og ég hef mikið gert... hmmmm), þá býr hann nú á tælandi og hefur búið þar í 1 ár...
sjitt... ég er algjör kjáni. ég held ég hafi móðgað bossinn soldið mikið... man. ég tók við pósti fyrirtækisins og ætlaði að koma til réttra aðila. meðal venjulegs pósts var þarna e-ð tímarit sem hét e-ð líkami... heilsa... fitness e-ð, æhhjjj ég man ekkert hvað það hét, það var alla vega svona "jæja, nú ætla ég í megrun!"-blað. ég fór til bossins og hló og sagði "varst þú að panta þetta?". hann svaraði með vandræðalegu jái um leið og hann kippti blaðinu úr höndum mínum. ég flúði fram með skottið á milli lappanna, alveg að deyja úr vandrói. rut sigurðardóttir! akkuru þarftu alltaf...

[note to self: ekki reyna að vera fyndin við bossinn]
meeeeeeeeeeeeeeeen!
mig dreymdi í nótt að strákur sem ég þekki sagði mér að hann væri skotinn í mér... tíhíhíhí.
alltaf skemmtilegt þegar e-r er skotinn í manni, draumur eða ekki draumur. :-)
man ég var búin að skrifa alveg heví mikið og svo fann ég ekki vafrann aftur eftir að hafa tekið smá pásu. hef ábyggilega slökkt á honum... man!
nú man ég ekki hvað ég hafði skrifað... ohhhhh...

fimmtudagur, júlí 25, 2002

þórhildur er svo spennt yfir vestfjarðaför sinni að hún póstaði fréttinni fjórum sinnum á spjallinu, verslunarmannahelgarþræðinum!
hehehe...
vonandi verður bara gaman hjá þér ástin mín.
ein samstarfskona mín var að vinna í landsbankanum fyrir nokkrum árum og hún var að segja mér sögu sem mér þótti rosa fyndin.
það var þannig að e-n daginn kom gæi í afgreiðsluna til hennar, voða yfirvegaður, og bað um að fá að hitta forstöðumanninn. jújú, það var ekkert mál, og eftir smá stund var honum vísað inn til hans. ekki leið á löngu þangað til forstöðumaðurinn kom út af skrifstofunni sinni og sagði fólkinu að hringja í lögregluna því það væri maður með sprengju inni hjá honum. það var og. löggan kom, víkingasveitin kom... bara allur pakkinn. húsið var rýmt og starfsfólkið þurfti að húka úti í e-ja þrjá klukkutíma eða þangað til gæjanum var náð. þá kom það í ljós að hann var með sódastrím-tæki innan á sér! hann ætlaði sem sagt að sprengja bankann upp með sódastrím-tæki. bara fyndið... hehehehehe. kröfur mannsins voru þær að bankinn átti að lána e-jum manni (ekki þessum) peninga til þess að gera heimildarmynd um hvali... hehehehehehe... ennþá fyndnara.
fyndið líka að löggan og víkingasveitin voru alveg þrjá tíma að ná manni með sódastrímtæki. hann hefði nottla getað unnið mikinn skaða með tækinu...eða. hvað er annars hægt að gera með því annað en að búa til sódastrím? mér dettur bara í hug e-s konar barefli. jú hann hefði líka getað slegið e-n í augað með rafmagnssnúrunni... jájá.
þetta er alveg hugmynd... sko með sódastrím-tækið... já eða gera heimildarmynd um hvali... hmmmmmm...
leiðinlegt að missa af þessu. mig langar svo mjög að sjá the hives. ekki það að það verði e-ð leiðinlegt hjá mér á þessum tíma, í danmörku og soleiðis... langar samt bæði.

miðvikudagur, júlí 24, 2002

hei... þetta er heví kúl.
party of the month... þenk-jú-verí-næs...
hehehehe...


Who's your daddy?? Find out @ blackhole

olrææææt...

You are Don Juan From "Don Juan De Marco."

Woobaby! You are Don Juan - dark and handsome, and the world's greatest lover. Some people find you to be a bit insane (or is that insanely sexy?). While you may not be playing with all 52 cards, don't let that get you down - you're a true romantic at heart.
Take The Johnny Depp Quiz!

hvernig ætli ágústu líði á mývatni? ég er farin að sakna hennar...

þriðjudagur, júlí 23, 2002

ragga mr-bekkjarsystir mín er 22 ára í dag. til hamingju ragga!
já, við verðum þó alltaf ungar í anda.
kynlífsspá mín fyrir sumarið í cosmopolitan:

í byrjun ágúst mun ég stunda símakynlíf, villt og galið, til ca. 7. ágúst. síðan til ca. 23. ágúst verð ég mjög kynköld og ekkert gaman að mér. en eftir það verður mikið fjör og mikið um massakynlíf.
ég mun fá ofurfullnægingar dagana 3. júlí, 26. júlí, 4. ágúst og 14. ágúst.

hver stundar eiginlega svona fræði? og á hverju ætli þetta sé byggt?

já... sei sei...
jeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiii... ég og stebbi erum komin með íbúð á kollegi í lyngby danmörku, hálftíma lestarferð frá miðbæ kaupmannahafnar. við erum sem sagt að fara og vera þar næstu önn. íbúðin er soldið lítil... elsa sagði að við yrðum annað hvort skilin eða ólétt þegar við kæmum heim... hmmmmmm. má ekkert á milli vera?

mánudagur, júlí 22, 2002

þetta er ógislegt próf en of fyndið til að sleppa. ég var sko the slippy. ég vildi ekki setja myndina beint inn því ég vil ekki hafa mynda af kúk á síðunni minni... hehehe.
hmmm... það var jafntefli...






taktu hvaða madonnu-myndband ertu? kvissið


þetta passar samt ekki alveg...
en madonna er algjör spaði!
það er loksins að hlynur lætur "heyra" í sér. ég kíki alltaf reglulega á síðuna hans en ofursjaldan er að finna nýja færslu. núna kíki ég og þar eru bara 5 nýjar færslur, frábært hlynur! fyrirsögn einnar færslunnar er hver er ber að baki nema... (bróður eigi), en mér finnst enska þýðingin of fyndin... every man is naked on his back unless he has a brother... hehehehehehe...
ég átti alveg yndislega helgi! ég, þórhildur, tóta og herdís vorum að "skutla" ágústu á mývatn þar sem hún er að fara í fornleifauppgröft.
ég ætla að skrifa ferðasöguna hér í grófum dráttum, þannig að þeim sem finnst leiðinlegt að lesa soleiðis ættu bara að hætta hér.

Við brunuðum af stað fljótlega eftir vinnu á föstudaginn. eina regla ferðarinnar var að það voru engar reglur. við ætluðum að stoppa þar sem við vildum, sofa þar sem við vildum og gera það sem við vildum. tókum með okkur eitt tjald, svefnpoka og hlý föt.
fyrsta stoppið okkar var í baulu þar sem við pissuðum (gaman að segja frá því... hehehe). við höfum nú oft áður keyrt þessa leið, en alltaf beygt hjá baulu og farið á kleppjárnsreykjar. en í þetta skiptið héldum við áfram og vorum eftir það alltaf að sjá e-ð nýtt, alveg rosalegt upplifelsi. stoppuðum svo í veitingaskálanum brú, sem er við botn hrútafjarðar og fengum okkur sveittan landsbyggðarborgara. þar gerði herdís líka soldið skemmtilegt sem setti mikinn svip á það sem eftir var ferðarinnar. hún keypti bókina íslendingasögur við þjóðveginn, eftir jón hjálmarsson, að mig minnir, en hana á að lesa þegar maður keyrir hringveginn. herdís las fyrir okkur nokkrar vel valdar sögur á þessu ferðalagi okkar, sem var alveg gríðarskemmtilegt svo ekki sé meira sagt. við stoppuðum svo við kolugljúfur í víðidal þar sem ragga, biggi, sigga, þór, ingibjörg, jonni, sigurlína og siggi voru með sumarbústað og stálum flatkökum með hangikjöti og einum mjólkurpott, en við höfðum ekki neitt nesti tekið með okkur. er við fórum um víðidal og vatnsdal las herdís söguna um víga-barða sem varðist borgfirðingum í borgarvirki eftir að hafa hefnt síðu-halls bróður síns, skammt frá var einmitt borgarvirki, en því tókum við ekki eftir fyrr en á bakaleiðinni. mér fannst þessi saga sko skemmtilegust. úr henni er einmitt komið orðtakið að kasta mörsiðrinu, en það þótti okkur endalaust sniðugt og ætlum að reyna að brúka það eins mikið og við getum... hehehe. þaðan brunuðum við í varmahlíð þar sem við skelltum upp tjaldi við hestagerði. settumst svo með öl í hönd og tjöttuðum alveg heillengi við hrossailm. daginn eftir héldum við svo aftur í hann og yfir öxnadalsheiðina. þar komum við fyrst við á bænum hólum, að mig minnir, en þar fattaði herdís að hún hafði skilið myndavélatöskuna sína eftir í varmahlíð með myndavél, veski, kortum, hún hafði sem sagt týnt myndavél og öllum höfuðstól sínum. en gamli sæti maðurinn í varmahlíð fann hana og ætlaði að halda henni fyrir okkur þangað til daginn eftir þegar við ætluðum að sækja hana. þannig þurftum við aðeins að keyra öxnadalsheiðina tvisvar sinnum þessa helgina í stað fjórum sinnum. næst komum við við á bænum hrauni í öxnadal þar sem jónas hallgrímsson fæddist og samdi ljóðið hraundranga, en það var alveg yndislegt. herdís tók okkur í smá jurtafræði og þekkjum við nú jurtir eins og jakobsfífil, gulmöðru, krossmöðru, ljónslappa, blóðberg og fleiri skemmtilegar. næst komum við á akureyri og stoppuðum fyrst í bónus þar sem ungir piltar blístruðu á okkur, mjög fyndið. fórum svo í sund og renndum okkur í skemmtilegustu rennibraut sem ég hef farið í á landinu. hún var svo skemmtileg að í æsingnum fékk herdís íþróttameiðsl og þurfti að hætta sundinu. fórum þá á greifann og fengum okkur heví djútí hálfmána í kvöldmat, áttum erfitt með gang og jafnvægi eftir þann snæðing. þaðan var stefnan tekin á endapunktinn, mývatn. við áttum stutt stopp í vaglaskógi og gerðum þar heiðarlega tilraun til þess að keyra restina með hálfs líters topp-flösku á bílþakinu. flaskan féll áður en við komumst úr vaglaskógi við mikinn fögnuð viðstaddra. gerðum svo stopp hjá goðafossi þar sem þorgeir ljósvetningagoði kastaði einmitt skurðgoðunum. komum loksins á mývatn og slóum upp tjaldi á tjaldstæðinu rétt hjá hótel reykjahlíð þar sem þóra fyrrverandi bekkjarsystir ágústu vinnur. seinna um kvöldið héldum við á mývatnsreif í flugskýlinu. jájá, frekar súrt. en við gátum alveg hellings hlegið að þessu. það versta var samt tónlistin. við héldum að þetta reif-nafn væri bara svona djók, ég meina, hver heldur alvöru reif á mývatni? en þetta var alveg reif með þannig tónlist og allt. persónulega fíla ég ekki soleiðis tónlist, en dj-arnir slysuðust til þess að spila skemmtilega tónlist inn á milli, sem var alveg geðveikt. við hittum marga skrítna mývetninga, þar má til dæmis nefna illuga skrítna á hjólinu sem datt á kinnina, stefán og jóa, en þeir vissu ekki hvor var hvor, stelpu í hermannabuxum sem var LL þórhildar og útlending sem dansaði hneigjudansinn.
í gær keyrðum við svo 480 kílómetra í einum rykk, þ.e. frá mývatni og í bæinn. stoppuðum reyndar örlítið á akureyri til að skoða skemmtiferðaskiptið a'rosa blu sem var með málaðan munn framan á sér og rós út úr sitt hvoru munnvikinu, mjööööög asnó. stoppuðum líka á blönduósi í sveittan landsbyggðarborgara.
ég gæti farið nákvæmar í þessa ferð en ég vil ekki drepa lesendur úr leiðindum. flest er nebblega svona hed-tú-bí-ðer

þessi ferð var yndisleg í alla staði. herdís, þórhildur, tóta og ágústa, takk fyrir frábæra helgi. næst förum við austur eða á vestfirðina, já eða bara hringinn. við verðum bara að muna eftir þjóðsögunum, íslendingasögunum, ljóðabókum, jarðfræðibókum, jurtabókum og svoleiðis...
sjitt er ég orðin geðveik? lyftan talaði við mig á leiðinni upp á skrifstofu, ég er alveg viss um það! ég var í sakleysi mínu á leiðinni upp á 7. hæð, alein. þá segir lyftan við mig "er öryggiskerfi lyftunnar í lagi?". mér dauðbrá, en sagði ekki neitt því ég vildi ekki viðurkenna alveg strax að ég væri farin að heyra raddir. þá talaði lyftan til mín aftur, "halló!" sagði hún. ég horfði upp í loftið og sagði líka bara halló. "er öryggiskerfi lyftunnar í lagi?" sagði hún þá aftur. "jájá" segi ég. "takk fyrir" svarar hún þá. "alltílæi" segi ég þá um leið og lyftan opnast á 7. hæðinni þar sem ég á að fara út. þetta var frekar spúkí, svona að tala við "þá", þúst þá sem eru alltaf að fylgjast með manni... hehehe. en þetta var alveg fríkí.

föstudagur, júlí 19, 2002

ólöf heimsótti mig í vinnuna áðan. það er alltaf gaman að sjá hana og við förum alltaf rúnt í kringlunni. en alltaf þegar við gerum það þá endar það með því að ég kaupi e-ð. rosa skrítið, hvað ætli það sé? kannski gefur hún frá sér svona kaupu-lykt... eða ég veit það ekki. alla vega, þá keypti ég skó... supplæs supplæs. en þeir voru svo ódýrir, aðeins 2.990,-. iss piss, kúkur og kanill.

fimmtudagur, júlí 18, 2002

já sei sei... flokkast þetta ekki undir tvískinnung?
ef ég væri til sölu þá myndi ég kosta kr. 168.670.774,-. það segir þessi síða a.m.k. veit ekki hvort ég eigi að vera ánægð eða ekki. líftryggingin mín er alla vega ekki svona há.
ef e-r myndi kaupa mig, hver fengi þá peninginn? hver á mig? væri hægt að gerast hluthafi í mér? væri ég góð fjárfesting? hmmmmm... spurning.
ég á mig a.m.k. sjálf.
þegar ég fór í sund í morgun var yndæll maður að vinna í afgreiðslunni sem lánaði mér sundgleraugu. þetta voru sko "ekta keppnisgleraugu", hann notar alltaf svoleiðis, og "þau eru langbest". þetta voru svona sundgleraugu sem eru svamplaus. hverjum datt eiginlega í hug að taka svampinn af sundgleraugum? það var algjör glæpur. ég þurfti að strekkja þau alveg heví djútí svo það færi ekki vatn í augu mér. nú er mér rosa illt, aðallega í vinstra auganu og þá sér í lagi þegar ég blikka rosa stórt með því. ég ætti kannski að hætta því... lalalaaaaaaaaa. þetta er eiginlega hið versta mál því eyrnablöðkuverkurinn eftir madonnu-mækinn er að koma aftur í vinstri blöðkuna. ég er sem sagt með verki í vinstra auganu þegar ég blikka stórt og vinstri eyrnablöðkunni þegar... jamm. úffff, ég er rosa beygluð.
strandarstrákarnir ekki lengi að stela úr vigga-blogginu mínu...
hehehe.
hei... ef við værum fréttastofur, ég kannski fréttastofa rut meistara og þið fréttastofa strandarstráka þá væri ég sko alltaf fyrst með fréttirnar... hehehe.
stebbi var að hringja frá lestarstöð í amsterdam. ég er bara abbó...
vignir eyrbekkingur að geifla sig... hehe. fannst þetta bara soldið skondið.
jæja, þá er ég orðin makalaus... he he... undo heyrist. keyrði fraukann og steinar upp á keflavíkurflugvöll klukkan hálf sex í morgun. ég var sem sagt búin að vera vakandi í 4 tíma þegar ég mætti í vinnuna klukkan 9. fór m.a.s. í sund og synti þar 31 ferð sem eru 775 metrar og er alveg að springa úr monti. veit samt ekki hvernig ég verð í kvöld klukkan níu þegar ég loksins enda þennan vinnudag... úfffff... það verður nú spennandi að sjá, jájájá.
ég er alla vegana á lausu ef einhver vill leika e-n tímann. ég er meira en til í að fara til dæmis í sund, kaffihús, frisbí eða bara e-ð skemmtilegt.

miðvikudagur, júlí 17, 2002

mér er orðið alveg illt fyrir ofan hægra eyrað og á vinstra eyranu, sko á eyrnablöðkunni (vottever...). ég þurfti nefnilega að skipta um sæti í vinnunni því konan sem átti borðið mitt var að koma úr sumarfríi. það var sko alltílæi því ég færði mig á gamla borðið mitt, borðið sem var mitt þegar ég vann hérna fúll tæm. nema hvað, að konan sem á það borð núna er greinilega með e-ð minni haus en mig minnti, því madonnu-mækinn hennar er svo asskoti þröngur að það er engu lagi líkt. sem svo orsakar líka þetta illt sem ég talaði um... leiðinlegt!
ojjjjjjjjjj... þetta er í breiðholtslauginni... laug sem ég fer oft í, og einmitt þennan pott þá helst...
samt pínu fyndið, hehehe.
jeeeeeeeeiiiiii... spjallið er komið aftur.

þriðjudagur, júlí 16, 2002

man... hvar er spjallið mitt?!?!? allir þræðirnir eru horfnir. hvað er eiginlega í gangi? ég er sko alveg að fara að gráta...
fyndið. björk er að vísa í blogg-síðu herdísar og linkar í mynd af henni. en það sem mér þótti einmitt fyndið var að barði er á myndinni. hahaha, eða kannski ekki fyndið... undo heyrist...
ég horfði á sjónvarpið í gær, nonnstopp frá sex til hálf eitt... jájá eyði tímanum alltaf í e-ð svona uppbyggjandi. horfði meðal annars á seven, hún er ekkert smá ógeð, en ógislega góð. horfði svo líka á rat race, mér finnst hún mjög fyndin...

mánudagur, júlí 15, 2002

akkuru ætli ég sé með massaharðsperrur í kálfunum? skil þetta ekki? nákvæmlega enginn íþróttamaður greinilega...
var að greiða staðfestingargjaldið fyrir bakka-pakkaferð, ég og stebbi erum sem sagt til. nú er sko bannað að breyta...
fyndið að rifja upp laugardagskvöldið með jóni, hann man bara mest lítið. ekki einu sinni þegar hann datt af stólnum... sem var alveg massafyndið. hehehe...
ég og stebbi ætluðum að bjóða til grillveislu á laugardaginn heim til stebba, en þar sem rigningin var svo ógurleg þá var planinu breytt í skyndi og boðið til pastaveislu. vorum búin að bjóða ca. 18 manns sem er jú soldið stórt matarboð. ekki nóg með það, heldur var sífellt að bætast við fólk og var að lokum eldað pasta fyrir 27 manns! ég var mikinn hluta dags að sannfæra stebba um að það þetta yrði nú ekkert mál og við gætum alveg komið öllu þessu fólki fyrir... ég var sko algjörlega að ljúga... en við fengum lánaða stóla og stell og viti menn, allir fengu sæti, pláss við borð, einn disk, eitt glas og hnífapör. það var mjög fyndið að kíkja inn í eldhús stuttu áður en maturinn var borinn fram. stebbi og hallur yfirkokkar voru við það að fá magasár, fannst allt vera í klessu og ömó. ég tók sko alveg þátt í eldamennskunni, skar grænmeti og soleiðis... ég held að allir hafi verið sammála um það að maturinn var mjög góður og vel hafi tekist til. svo var bara djammað fram eftir öllu. það var m.a.s. það gaman að það var þónokkuð stór hópur sem var í partíinu þar til það var einfaldlega búið. í partíinu voru 5 útlendingar, 2 svisslendingar sem kiddi á og 3 frakkar sem herdís á, en þeir vöktu öll mikla lukku. í tímabili var gítarstemmning sem steinar litli bróðir hélt uppi ásamt jóni eggerti. svo fórum við í danskeppni, svona gömlu-danskeppni, þar sem fullt af pörum byrjaði úti á gólfi og svo var dómnefnd sem pikkaði út þá sem duttu úr keppni. keppnin var æsispennandi þegar aðeins tvö pör voru eftir, ég og rúnar annars vegar og stebbi og kristín hins vegar. við rúnar gjörsamlega áttum dansgólfið og sýndum einstaka takta. það voru því mikil vonbrigði fyrir okkur þegar við vorum pikkuð út og kristín og stebbi krýndir sigurvegarar. þótti okkur þetta mjög ósanngjarnt og urðum hin æfustu. seinna sagði formaður dómnefndar mér það að þau hafi einfaldlega sigrað því dómnefnd var hrædd um það hve sár og svekkt þau yrðu hefðu þau tapað, því þorðu þau ekki að dæma þau úr leik. þetta var sem sagt svona mörsí vinn. þó við höfum ekki unnið þá vitum við það í hjarta okkar að við vorum hinir sönnu sigurvegarar... hehehehe...
partíið endaði með slípóver 9 manns. þetta var hin allra besta skemmtan...
þakka öllum fyrir frábært kvöld.

föstudagur, júlí 12, 2002

ég féll gjörsamlega í haugkaup. keypti mér algjört nammi í bakaríinu og svo fullt af ávaxtakarmellum í nammilandinu.
arrrrghhhh...
þetta flumm er víst flüm og er götusmiðjan að gera grín.
klapp klapp... þetta er frábært hjá ykkur.

fimmtudagur, júlí 11, 2002

sá alveg massafyndið atriði fyrir utan dána nanoq áðan.
það voru ca. 10 íslenskir krakkar að leika keppendur frá hinum ýmsu evrópulöndum sem áttu að hafa ferðast til íslands til að keppa á móti í e-ju sem mér heyrðist heita e-ð f og e-ð l og e-ð u, kýs að kalla það flumm, sem sagt mót í flummi (eða e-ð... hehehe). þau voru í svona hvítum bréfsamfestingum (eins og helena, heiða, ásta og fleiri góðar klæddust á diskóteki í barnaskólanum á eyrarbakka árið 1987 og þóttu alveg massakúl!) og aftan á þá var búið að mála fána og nafn landsins "þeirra" og svo nafn þeirra sjálfra. þegar ég byrjaði að horfa á þetta þóttust þau öll vera að hita upp fyrir e-n rosa íþróttaviðburð, þ.e. þennan flumm-viðburð, mjög fyndið. svo byrjaði sjóið og þá fattaði ég að þessi flumm-keppni var einfaldlega ljótu-dansa-keppni. þá áttu þau sko að vera fólk sem var flumm-meistari síns lands og voru að koma til íslands til að keppa fyrir hönd þess, en þetta voru sko allt íslendingar að þykjast. ég var í hláturskasti, fannst þetta mjög sniðugt hjá þeim. þau stóð sko öll í hring og hoppuðu og klöppuðu á meðan einn keppandinn var í hringnum að sýna sína allra bestu flumm-takta. það var m.a.s. tvisvar sinnum svona flumm-áskorun. þá voru tveir flummarar að keppast. svo datt rússinn og fékk flumm-meiðsl. hehehe... vildi að ég hefði verið svona sniðug að fatta upp á þessu...
ef ég er e-ð alveg að misskilja þá... sorrí. ég hló mig a.m.k. máttlausa yfir þessu... og var allt of lengi í pásu.

mig langar að vera flumm-meistari...
þau voru að auglýsa e-ð flumm-mót, hvar ætli sé hægt að skrá sig... hmmm...
leiðinlegt að vera eins klæddur og e-r annar.
ég fór í skóbúð um daginn og þar var stelpa að afgreiða sem var bara nákvæmleg eins og ég! frekar súrt. hún var í dökkbláum gallabuxum, skærgulri peysu (alveg ædentical) og með ljóst hár. ég var ekki lengi að hraða mér þaðan út. svo er stebbi alltaf að reyna að vera eins klæddur og ég. held að honum finnist kúl að vera kannski tvö á labbi og í alveg eins fötum... skrítið. ég er sko alltaf að reyna að segja honum eins og er, að það er alls ekki kúl. held að hann sé ekki að fatta það. tók upp á því fyrir nokkru að kaupa sér skærrauðan bol eins og ég á. svo alltaf þegar ég er í mínum, þá fer hann í sinn. frekkar lummó. svo þegar ég var nýbúin að kaupa skærgulu peysuna fór hann og keypti sér skærgulan bol. datt þetta bara í hug, því ég hitti hann í hádeginu í dag og við vorum bæði í gulu peysunum okkar. honum fannst það geðveikt kúl og mér fannst það geðveikt önkúl.
hehehe...
hildur, takk fyrir grillið í gær. það var rosa rosa gott. :-)

miðvikudagur, júlí 10, 2002

jæja... var að panta pakkaferð á þjóðhátíð fyrir hina fjölskyldumeðlimina, mömmu, pabba og hrafnhildi litlu systur. þetta verður bara gaman.
það var geðveikt veður í gær... geðveikt sundveður. því ætlaði ég að plata e-ja af mínum yndislegu vinkonum í sund, þar sem fraukinn lá heima með pjúkupest. ég hringdi í allar vinkonur mínar í heiminum... og ekki ein svaraði. leiðinlegt! endaði með því að ég fór ein í sund, frekar sorgleg. ég var samt rosa dugleg. eftir sólbað í pottinum skellti ég mér í laugina og synti heilar 12 ferðir, á þessari líka blússandi ferð... jájá. ég ætlaði sko að vera svaka heilbrigð, búin að taka sundlaugarpakkann, stefndi á e-ð mjög hollt og gott í kvöldmat. grillaðir hamborgarar og franskar, þenkjú verrí næs! alltílæi, byrja bara á morgun...
veit ekki hvað ég hef eiginlega sagt þetta oft. nákvæmlega engin sjálfstjórn.
það er greinilega að myndast gríðarleg stemmning í kringum þjóðhátíðina og allt að verða upppantað. björk segir að ef þú ætlir að kaupa pakkaferð á bsí og taka þar rútu til þorlákshafnar, herjólf til eyja og miða í dalinn, þá geturðu farið á miðvikudeginum fyrir þjóðhátíð og komið heim á þriðjudeginum, allt annað er upppantað... eins og vestmannaeyjar eru yndislegar, þá er soldið súrt að vera þarna 3 aukadaga, bara að bíða. ég held að ég sé bara í ágætis málum með þennan pakka sem ég pantaði frá bakkaflugvelli. :-)

þriðjudagur, júlí 09, 2002

blysin eru bara flott...
kóngur (krimmanna)...
ómægot!
friðrik weishappel er úti á bílaplani kringlunnar!!! hann er svo sexí...
úfffffffffff... ég er bara gelgja...
ég fór í sund í gær eftir vinnu, sem væri nú ekki í frásögur færandi nema hvað... það var kona í heita pottinum sem var með mesta yfirvaraskegg sem ég hef séð á kvenmanni! þetta var sko pottþétt kona, með þessa líka rosa þýsku hormottu. ég er náttúrulega svo barnaleg að ég fékk hláturskast og ætlaði aldrei að jafna mig, stebbi var farinn að skammast sín niður í tær fyrir mig. en halló! þetta var frekar hlægilegt... hed tú bí ðer kannski. endaði með því að við þurftum að færa okkur því ég fékk annars bara störu, og ekki er það nú fallegt... neinei.
annað kall-nei-kona-dæmi: þegar við vorum að keyra í sundið sá ég aftan á berleggjaðan hjólagarp. ég ætlaði að fara að nefna það hve massaða og skorna kálfa þessi hjólamassi hefði, og seisei mikið rosalega hafði hann fallegt og sítt hár. þá fattaði ég það og rak upp óp... þetta var kona! svona kálfa hef ég sko aldrei áður séð, ekki einu sinni á mössuðustu fótboltamönnum. mér þótti þetta frekar ógó. þessi fína kona með þessa líka skornu karlmannskálfa.
eru konur alveg að tapa kvenleikanum nú til dags... ég bara spyr...

mánudagur, júlí 08, 2002

árni johnsen verður með brekkusönginn... jeeeeiiii... sem betur fer. þetta væri nú ekki eins án hans, krimma eða ekki krimma.
þetta finnst mér bara fyndið. mér var m.a.s. boðið... man, hefði átt að mæta.
verslunarmannahelgin hefur verið plönuð. ég hef ákveðið að breyta ekki út af vananum þetta árið og fara til eyja... supplæs supplæs. þetta verður þá í sjötta skiptið sem ég fer á þjóðhátíð... það er bara svo skemmtilegt. var að panta flug frá bakka á föstudeginum milli klukkan 5 og 6. pantaði fyrir mig, stebba og ólöfu, eins gott að þetta fólk komi... þorbjörg og jón fljúga um morguninn og rúnar á fimmtudeginum. ef ég þekki hann rétt þá þarf hann ábyggilega líka að fara síðastur frá eynni... algjör. ég er búin að fá gistingu hjá frænda mínum, rétt hjá dalnum... bara kúl. orðin alveg heví spennt.

það vantar eina svona skítaútihátið þetta árið. vona að pakkið sem sótti, eða eyðilagði, eldborg í fyrra fari bara úr landi eða e-ð, að það komi a.m.k. ekki til eyja. vil ekki sjá svona subbuskap...
ég borðaði alveg geggjaðan grillaðan humar á föstudagskvöldið. þorbjörg er algjör grillsnilli. söfnuðumst saman nokkur heima hjá john john, grilluðum og drukkum bjór. það var misjafnt hvað menn grilluðu, pylsur (einn maður grillaði 5 pylsur... vá!!!), hamborgara, naut/svín, kjöt á teini og humar, allt alveg rosa girnó. lenti í mjög súrrealísku eftir matinn. talaði heillengi við ara karls um hluti eins og vanskil og bunkanúmer... hmmmmm... mér þótti það frekar fyndið, svona eftirá að minnsta kosti. hehehehe... lúðabankafólk... jájá.
svo fórum við niður í bæ, beint á sportarann... frekar miklir lúðar, en það var sko eitís-kvöld þar, múnbúts að spila og bara rosa gaman, klikkuðum bara á búningunum.
ég fékk að gjalda fyrir pæjustæla mína á nýju skónum mínum, varð frekar illt. það átti sko eftir að ganga þá til, er a.m.k. búin að því núna ;-)

föstudagur, júlí 05, 2002

ömmmmmmm... ís er það besta sem ég fæ...
man... við erum allar í rusli hérna á skrifstofunni. það kom alveg gordjös gæi hingað upp áðan, villtist e-ð, ætlaði í móttökuna. hann spurði líka sérstaklega um mig... tíhíhí... hann var svo sjarmerandi. hann var líka með pínulitla dóttur sína, og hvað er meira sexí en myndarlegur maður að leika við dóttur sína? erum allar alveg...
dagurinn í gær var ekki góður, byrjaði illa, varði lengi og endaði illa. Byrjaði á því að gamalli konu þótti ég ekki skemmtileg og skellti á mig, ég sem dýrka gamlar konur... ekki þessa gömlu konu. var svo að vinna í 12 klukkutíma, frá 9-21. Endaði á því að gamall maður húðskammaði mig í heilar 15 mínútur fyrir e-ð sem er ekki á minni ábyrgð, ég sem dýrka gamla kalla... ekki þennan gamla kall. ég er farin að efast um gamla fólkið í dag. unglingavandamál... puffff... öldungavandamál. þetta gamla fólk er ekki eins og það var hér áður fyrr...

fimmtudagur, júlí 04, 2002

sjitt... fæ ábyggilega harðsperrur í músarhöndina á morgun... ekkert að gera í vinnunni og er því að spila super collapse. orðin alveg heví góð... en alveg heví illt í hendinni :-(
ágústa og þórhildur fara senn að eignast sína eigin íbúð. þær hafa gert tilboð sem var samþykkt, aðeins eftir að ganga frá pappírum. ég var að skoða íbúðina á netinu og hún er ýkt sæt. ég hlakka ekkert smá mikið til að fara í heimsókn þangað. kannski ná þær að landa einhverjum þangað... eflaust. það er hægt að skoða myndirnar hér.
nú fer ég yfir um! ég er veik sál, allt of veik sál fyrir útsölufárið sem er að hefjast. fór í gær á forútsölu hjá topshop smáralind, keypti þar 5 boli, takk fyrir, já 5 stykki! var svo "plötuð" til þess að kíkja á laugaveginn í hádeginu í dag og tjekka á útsölunum þar. jújú, ætlaði bara aðeins að tjekka, það ætti nú að vera í lagi, eða hvað? labbaði fyrst inn í 17 og beint í skódeildina og sá þá parið sem ég varð svo skotin í um daginn, og viti menn, á útsölu! kostaði áður 10.990,- en var nú á aðeins 5.990,-!!! ég fékk að máta. það var aðeins eitt par til í mínu númeri. ómægod, vissi sko ekki hvað skyldi gera. stebbi jarðbundni sagði að ég skyldi biðja afgreiðslukonuna að geyma parið á meðan við kíktum e-ð annað, bara í svona hálftíma... jújú, ekkert mál. röltum okkur þá yfir í kron... stóóóórhættulegt! fann alveg geeeeeeðveika skó... en þeir voru soldið dýrir. en þeir voru svo geeeeeeðveikir! ef ég hef e-n tímann verið í bobba þá var það þarna... iiiiiiiiiiiiiiiiiii... mig langaði í þá báða, og var virkilega að spá í að kaupa þá báða. þetta var mikið taugastríð. endaði með því að ég keypti kron skóna (sem voru ekki einu sinni á útsölu!) og tók stefnuna beint á 17 þar sem ég ætlaði að kaupa hina skóna líka. en þá skyndilega helltist yfir mig skynsemiskast, ef skynsemiskast er hægt að kalla... alla vega, þá tók ég sveig fram hjá 17 og brunaði beint í vinnuna.
fjúkket, þarna mjóaði sko munu...
hvernig endar þetta útsölufár allt saman eiginlega?

miðvikudagur, júlí 03, 2002

já... ínöff sed...


See what drug you are.

þriðjudagur, júlí 02, 2002

svona í framhaldi af teiknimyndavondukallaprófinu þá langaði mig að athuga hversu ívil ég væri í raun og veru (þessi internetpróf ljúga sko ekki...), hvort fyrra prófið væri kannski e-ð bull (hælí önlæklí). það er bara nokkuð greinilegt að ég er roooosalega góð, eiginlega bara ol gúd...





You are 20% evil! [?]


You're pretty non-evil. You're a little bit off of being all good, but you tend to still be orderly and peaceful. You aren't the bad person at all...for the most part.


það var verið að bjóða mér í þrítugsammæli um helgina... á akureyri!!! það verður grill, hvítvín og bjór, brjálað fjör skilst mér. það væri rosa rosa gaman að skella sér norður svona eina helgi. en ég er svo leiðinleg og nenni ekki að leggja það á mig, að velkjast um í bíl alla leið til akureyrar. svo held ég að ég þekki bara ammælisbarnið... og jú veislustjórann. yrði ekkert smá uppáþrengjandi gella! æi... kannski e-n tímann seinna... kannski kíki ég í fertugsafmælið... en takk samt fyrir boðið :-)
jæja... hír-ví-gó-agenn...
teiknimyndavondukall...
vissi þetta allan tímann... ég er svo góð... eða er það ekki?


Hvaða teiknimyndavondukall ert ÞÚ?
jesússsssss... allt er nú til. nýjasta nýtt, meiri og dýpri fullnæging fyrir konur með smyrsli. þetta er samt sniðugt, ég meina kallarnir hafa fengið sína bláu og nú fá konurnar sitt. það á víst að bera kremið á *hvísl* snípinn */hvísl* og á það að svínvirka strax eftir klukkustund skilst mér. ég las reyndar í mogganum að mig minnir, að áhrif kremsins vari frá einni klukkustund til sólarhrings... pælið í því! maður þyrfti bara að taka sér frí frá vinnu! ef einhver prófar þetta þá má sá hinn sami endilega láta mig vita. ekki það að ég þurfi... bara svona... jájá... forvitin... he he... undo!
tíhíhíhí... ef ég væri barbídúkka... vá... leiðinlegt að vera barbídúkka... en harley-gella, jájájá...




þessum prófum ætlar ekkert að linna... fann barbí hjá björk.
úffffffff... borðaði allt of mikla pizzu... líður ekki svo mjög vel... það skrítna er að ég fékk líka domino's pizzu í kvöldmatinn í gær og viti menn... borðaði yfir mig! alveg ótrúlegt! ætla ég aldrei að læra?!?
[note to self: ekki borða alltaf svona mikla pizzu!!!]
ég hef hætt við að fara í skógaútileguna um næstu helgi. ferðin kostar nebblega peninga sem ég á ekki. en mér hefur verið boðið í jónsmessu á föstudagskvöldið og ætla mér að mæta þangað. þetta verður messan hans jóns sigurðar og mun hann fara með guðspjöllin og halda þannig uppi stuðinu, eins og honum einum er lagið... hehehe... ég alla vega hlakka til :-)
jeeeiiiii... það verður boðið upp á pizzu í hádeginu... fátt sem kætir mig meir. :-) mig langar alltaf í pizzu, svöng eða ekki svöng...
lenti í frekar leiðinlegu atviki á laugardagskvöldið þar sem ég einfaldlega... já... tapaði kúlinu í smá stund. ég og þórhildur vorum stoppaðar og spurðar hvort við kynnum á linux. ænó! hvaða lúði pikkar í fólk og spyr hvort það kunni á linux? veit ekki alveg hvað vakti fyrir honum, kannski var hann sjúkur í okkur, 100% sjúkur... hehehehe... alla vega, þar sem ég er líka pínu lúði, þá hefði ég nú átt að geta svarað þessari spurningu játandi... en nei, ég kann ekki á linux. hefði átt að huxa í vetur þegar ég ákvað að skrópa í dæmatíma í stýrikerfum að ég gæti máske tapað kúlinu eitt laugardagskvöldið ef ég mætti ekki. oohhhh... akkuru huxar maður ekki fram í tímann... rææææt...
var veik í gær, var því heima. þar sem ég blogga ekki heima hjá mér (akkuru ætli ég geri það ekki???) þá hefur ekkert uppfærst síðan á flöskudaginn.