einfaldlega veljið "answer this entry" og skráið nöfn keppenda og nafn liðsins. falleg kveðja væri líka vel þegin...
föstudagur, maí 31, 2002
skráning í breiðholtsbikarinn er hafin hér á spjallinu.
einfaldlega veljið "answer this entry" og skráið nöfn keppenda og nafn liðsins. falleg kveðja væri líka vel þegin...
einfaldlega veljið "answer this entry" og skráið nöfn keppenda og nafn liðsins. falleg kveðja væri líka vel þegin...
ég og stebbi fórum í körfubolta í gærkveld. vorum að æfa fyrir breiðholtsbikarinn, en þar munu etja kappi 3 geysisterk lið úr breiðholtinu.
1. svanirnir: rut og stebbi
2. valkyrjurnar: þorbjörg og jón
3. afturgöngurnar: ólöf og rúnar
keppt verður um glæsileg verðlaun, og MJÖG mikinn heiður.
hvenær á hann eiginlega að vera? jón, þú sérð um dagskrárgerð ;-)
1. svanirnir: rut og stebbi
2. valkyrjurnar: þorbjörg og jón
3. afturgöngurnar: ólöf og rúnar
keppt verður um glæsileg verðlaun, og MJÖG mikinn heiður.
hvenær á hann eiginlega að vera? jón, þú sérð um dagskrárgerð ;-)
hahahah... þeir eru nú soldið kúl. en hvað er málið með toppinn eiginlega?

which 80s hair band are you?

which 80s hair band are you?
jeeee... næ sýn á skrifstofunni minni óruglað og er að horfa á opnunarleik hm í beinni.
algjör pæja!
algjör pæja!
ætla sko bara að taka það fram að ég fór í leitarvél og leitaði að "sex and the city" og þessi "ógislega" síða var ein af þeim sem komu fram. ég var sko ekki að leita að e-ju svona sikk... alveg satt.
dawson's freak rústaði þessu algjörlega. hahahah...
æææhhhhjjjjj...húsið á sléttunni. jú, nellí var líka leiðinleg.
þetta var reyndar soldið gefið, en teletubbies eru svo skemmtilegir...
æææhhhhjjjjj...
þetta var reyndar soldið gefið, en teletubbies eru svo skemmtilegir...
fimmtudagur, maí 30, 2002
ok... ég fann eina óvenjulega síðu... "hvern myndiru drepa".
veit ekki hvort mér finnst þetta fyndið eða ógislegt. þetta er alla vegana athyglisvert, sumar niðurstöðurnar í það minnsta.
t.d. "beverly hill 90210" þar sem "horse head" "vinnur" með yfirburðum. hún heitir sko donna, djísöss.
og hvernig er hægt að segja svona um "sex and the city"!!!
ég er í losti yfir þessu...
samt soldið fyndið að skoða þetta.
veit ekki hvort mér finnst þetta fyndið eða ógislegt. þetta er alla vegana athyglisvert, sumar niðurstöðurnar í það minnsta.
t.d. "beverly hill 90210" þar sem "horse head" "vinnur" með yfirburðum. hún heitir sko donna, djísöss.
og hvernig er hægt að segja svona um "sex and the city"!!!
ég er í losti yfir þessu...
samt soldið fyndið að skoða þetta.
hahahah...
fékk þetta sent frá védísi:
Spáið í þetta!
Afleiðingar af notkun nútíma lyfja verður að hugsa til enda:
Þar sem undanfarin ár hefur meira fé verið eytt
í brjóstastækkanir og Viagra en í rannsóknir á Alzheimer,
er því trúað að árið 2030 muni fjöldi fólks ráfa um
með stór brjóst og standpínu án þess að muna hvað gera eigi við þau...
fékk þetta sent frá védísi:
Spáið í þetta!
Afleiðingar af notkun nútíma lyfja verður að hugsa til enda:
Þar sem undanfarin ár hefur meira fé verið eytt
í brjóstastækkanir og Viagra en í rannsóknir á Alzheimer,
er því trúað að árið 2030 muni fjöldi fólks ráfa um
með stór brjóst og standpínu án þess að muna hvað gera eigi við þau...
fékk rosa gott hint frá dísu ljósálfi á spjallinu. hún er að mæla með vísindavef hí.
þetta er ekkert smá sniðugt. spurningar eins og "hver er sinnar gæfu smiður?", "er hægt að sitja einhvers staðar annars staðar en á rassinum" og "halda mýs að leðurblökur séu englar?". hahahah, ég var í hláturskasti yfir þessu. góð pæling þetta með mýsnar og leðurblökurnar...
þetta er ekkert smá sniðugt. spurningar eins og "hver er sinnar gæfu smiður?", "er hægt að sitja einhvers staðar annars staðar en á rassinum" og "halda mýs að leðurblökur séu englar?". hahahah, ég var í hláturskasti yfir þessu. góð pæling þetta með mýsnar og leðurblökurnar...
björk var að koma heim frá ameríku. velkomin heim björk :-)
alltaf gaman að skoða bloggið hennar.
alltaf gaman að skoða bloggið hennar.
miðvikudagur, maí 29, 2002
ómen... fékk græðgiskast í nammilandi og keypti ógnarmikið af ávaxtakarmellum... er núna að fara að æla.
hvað er málið með þetta nammiland, man...
hvað er málið með þetta nammiland, man...
geðveikt skemmtilegt í gærkvöldi. fékk lánaða holtsgötuna og fórum þangað ég, stebbi og herdís, horfðum á sex and the city, drukkum rauðvín og bjór og spiluðum manna. frábært! reyndum líka að rifja upp spilagaldra. ég kunni sko alveg massamikið af svona göldrum þegar ég var lítil, allt gleymt og grafið í dag. man...
takk elsku dúllurnar mínar fyrir lánið á íbúðinni, þið eruð æði :-)
það fer að verða síðasti sjens að heimsækja holtsgötuna, búið að selja og tæmt um helgina. *snökt*
takk elsku dúllurnar mínar fyrir lánið á íbúðinni, þið eruð æði :-)
það fer að verða síðasti sjens að heimsækja holtsgötuna, búið að selja og tæmt um helgina. *snökt*
þriðjudagur, maí 28, 2002
hei... ég fékk um helgina næststíðasta friends og loka friends. nýbúin að horfa á þættina. að venju er skandall í lokin... sem ég segi að sjálfsögðu ekki hver er, en það er skandall. mér skilst að þeir ætli að gera aðra seríu, seríu númer 9, bíð spennt eftir henni. eða, annars... þetta fer eiginlega að verða gott hjá því friends-fólki. þættirnir hafa verið að dala finnst mér, en samt alltaf gaman að þeim. en er ekki kominn tími til þess að fara að hætta þessu?
man... ég missti af survivor í gær, sofnaði óvart (frá 18-23!!!). skiptir svo sem litlu máli með þennan survivor, þar sem ég veit hver vinnur!#!#! ég er sko ennþá brjáluð!
ungfrú innri fegurð á radio x... mér finnst þetta sehr interesant.
það er algjörlega verið að híja á þessar fegðurðasamkeppnir sem hafa verið í gangi.
það er algjörlega verið að híja á þessar fegðurðasamkeppnir sem hafa verið í gangi.
ekkert smá þreytt í morgun. var næstum því búin að kol inn sikk, en fattaði svo að það væri frekar lélegt. fattaði svo að ég hef aldrei tekið veikindafrí í vinnunni síðan ég byrjaði. að vísu lenti ég í viku á spítala í fyrra vegna samfallins lunga, en það hlýtur að teljast vera löglega afsakaður. mér finnst að þeir sem taka sér aldrei veikindafrí ættu að fá bónus í einhverju... hint hint launum. jæja, ég skrópaði a.m.k. ekki, of samviskusöm... hmmm... er líka bara í gúddí fíling núna :-)
mánudagur, maí 27, 2002
fór í leigubílaröð eftir djamm á laugardaginn, enga smá röð, endaði fyrir framan mr! en alla vegana, þá var hallur e-ð pirraður yfir því að þurfa að standa í þessari röð því að hann lenti alltaf á e-jum gæjum sem voru frústreraðir yfir því að vera að fara einir heim, dömulausir, og létu það bitna á öllum í kringum sig með því að vera tótal djörks. jeminn eini, þessi spá rættist svo sannarlega! það var einn sá mesti hálfviti sem ég hef hitt á lífsleiðinni fyrir framan okkur. við héldum fyrst að hann væri að grínast, en föttuðum fljótt að maðurinn var bara svona mikill asni. við vorum e-ð að tala saman okkar á milli þegar hann sneri sér við og fór að segja okkur frá því hvernig hann hefði nú farið með hálfvita eins og okkur þegar hann var á sjó um daginn, hann henti honum bara niður um aflarennuna. hann skyldi nú drepa í sígarettunni sinni í andlitinu á okkur, því við værum svo mikil fífl. og ef við töluðum saman þá sagði hann okkur að við skyldum nú ekki segja orð fyrr en við værum komin fremst í röðina og hann upp í leigubíl og heyrði ekki lengur til okkar. svo var það í eitt skiptið sem við "slysuðumst" til þess að tala saman og slettum e-rri ensku, eins og gengur og gerist, neinei, þá vorum við nú meiri helv... fávitarnir að halda að hann skildi ekki ensku, hann ætlaði að stúta okkur. svona hraunaði hann endalaust yfir okkur á meðan við stóðum þarna í röðinni, og sögðum aldrei neitt á móti, vildum ekki styggja þennan grasasna enn frekar. vinur hans var hljóður, en hann var mjög stór og sterkur. það voru bara e-jir krakkar fyrir aftan okkur, þ.a. liðsstyrkurinn var ekki mjög öflugur ef e-r væri hjá okkur. annars hefði ég sko hrækt í augað á honum! jeee.
við urðum rosalega glöð þegar stebbi hringdi í okkur, en þá var hann fremst í leigubílaröðinni, hafði náð að svindla sér með frænku sinni. við drifum okkur til hans og hoppuðum strax inn í bíl. við múnuðum öll á fíflið er við keyrðum fram hjá... eða ég gerði það a.m.k. í huganum...
við urðum rosalega glöð þegar stebbi hringdi í okkur, en þá var hann fremst í leigubílaröðinni, hafði náð að svindla sér með frænku sinni. við drifum okkur til hans og hoppuðum strax inn í bíl. við múnuðum öll á fíflið er við keyrðum fram hjá... eða ég gerði það a.m.k. í huganum...
ég fór, eins og flestir íslendingar, að kjósa á laugardaginn. fór með mömmu og pabba í víðisstaðaskóla til að kjósa í kjördeild 7 í hafnarfirði að mig minnir. fórum öll 3 saman inn, fyrst var merkt við mömmu, svo við pabba og svo kom að mér.
kosningakona: k
rut: r
k: hvað heitir þú, vinan?
r: rut sigurðardóttir.
konan skoðar íbúa skráða á miðvangi 10 þar sem hún var nýbúin að merkja við bæði mömmu og pabba.
k: ertu viss um að þú eigir heima þar, vinan?
r: já, ég er viss um að eiga heima þar.
hvað meinti konan eiginlega!!!
hún fletti aftur yfir íbúa á miðvangi 10, fann mig hvergi.
k: þú ert bara ekki á kjörskrá hjá okkur, vinan.
r: ha? er ég ekki á kjörskrá!
var að hugsa hvað maður þurfti að gera til þess að vera sviptur kosningarétti. hef nú ekki gert neina rosa slæma hluti í gegnum tíðin, tel mig bara vera nokkuð góðan borgara.
k: það hlaut að koma að því, það hefur ekki verið neitt klúður í allan dag.
greit, það þurfti akkúrat að vera ég!
konan sendi mig á fund með kjörstjórninni í viðisstaðaskóla, ég þurfti að reyna að telja þeim trú um kosningarétt minn. ég var sko ekki að hafa tíma fyrir e-ð svona vesen, var á leiðinni í grill og var að missa af júróvisjon. fór á fund með tveimur eldri mönnum, innfæddum hafnfirðingum, göflurum í húð og hár. annar hringdi í yfirkjörstjórn hafnarfjarðar, og allan tímann á meðan hann var að tala í símann þá var hann að spyrjast fyrir um það hverra manna við værum öll. eftir svolitla veru hjá kjörstjörn viðisstaðaskóla kom það í ljós að ég var skráð í aðra kjördeild. það var sem sagt þannig að þegar við fluttum frá hverfisgötunni og mamma færði lögheimili okkar allra yfir á miðvanginn þá einhverra hluta vegna skildi hún mig eftir á hverfisgötunni... hmmmm, hint, hint mamma? alla vegana þegar gaflarinn góði vissi kynið á okkur öllum þá sendi hann mig á annan kjörstað, nánar tiltekið í lækjarskóla, og ég fékk að kjósa þar fyrir rest. missti samt af hluta af júróvisjon... puhu...
skoðanakönnun
djö...!!!
sá að beta rokk var með rosa flotta skoðanakönnun á síðunni sinni, og langaði að gera svoleiðis líka. ég fór á þessa sniðugu síðu og hófst handa. planið var að gera skoðanakönnun um survivor, þ.e. með hverjum fólk héldi af þeim sem eftir eru. ég var ekki alveg með öll nöfnin á hreinu þannig að ég fór á google og leitaði að "survivor" og fór á fyrstu síðuna sem leitin skilaði.
ég varð brjáluð!!! á forsíðu síðunnar var sigurvegarinn í survivor!!! þ.a. nú veit ég hver vinnur og get alveg eins hætt að horfa á þáttinn. ég sem var orðin ekkert smá spennt yfir þessu og alveg að lifa mig inn í hvern einn og einasta þátt. ég hef tekið þátt í gleði og sorg keppenda alveg til þessa, og nú ert allt ónýtt, allt!!!
en skoðanakönnunin er tilbúin, endilega að kíkja á hana og kjósa, hún hefur kostað mig mikið...
kjósa í skoðanakönnun
laugardagur, maí 25, 2002
búin í dag
jæja, farin heim úr vinnunni, nákvæmlega ekkert að gera. ætla að drífa mig að kjósa og gera mig svo sæta fyrir grillið. buxur eða pils? hhmmmm...
ólöf 17 ára
ólöf var að segja mér alveg rosa rosa fyndið í gær. þannig er það að ólöf ætlaði að endurnýja ökuskírteinið sitt um daginn. hún hafði trassað þetta í e-n tíma, en lét loksins verða að því. en þegar hún kom upp á löggustöð og var að sækja um endurnýjun, sagði konan henni að það væri of langt liðið síðan ökuskírteinið hennar féll úr gildi og hún þyrfti að taka prófið aftur. eins og flestir myndu gera þá fríkaði ólöf greyið út, en konunni og kerfinu var ekki haggað. ólöf þurfti sem sagt að finna sér ökukennara t.þ.a. kenna sér að keyra og punga út fyrir öllum pakkanum sem er ekkert smá. minnir að hún hafi sagt að ökutíminn kostaði 3.700 kall, bóklega prófið 1.500 kall og verklega prófið 3.500 kall. úfffff, aumingja ólöf. ég var samt í hláturskasti yfir þessu, ólöf 17 ára ol óver agenn.
nú er ólöf búin að finna sér ökukennara og búin í einum tíma, þar sem hún keyrði frá leikskólanum þar sem hún vinnur og heim í breiðholt. en ekki nóg með það, heldur er ökukennarinn hennar gamall kennari flestra okkar mr-inga, eða hann knútur hafsteinsson íslenskukennari. þetta þótti mér sko alveg massafyndið. frekar súrt.
gangi þér vel með bílprófið ólöf mín :-)
grill
jei!!!
stebbi og vinir hans voru svo yndislegir að bjóða mér í grill í kvöld. það verður grillað heima hjá halli, veit ekki nákvæmlega hvað, en þeim er vel treystandi fyrir því. hef smakkað tvisvar sinnum grill hjá þeim og það var alveg geggjað, spennandi að vita hverju verður skellt á grillið í kvöld. svo heimtaði ég að það yrði horft á júróvisjon, fékk ekkert frábærar viðtökur, en hvað með það, ég sit þá bara ein fyrir framan sjónvarpið með minn bjór, í gúddí fíling. annars er svo sem alltílæi þó ég missi af því, ólöf og kristín taka það pottþétt upp, þær eru sko mestu júrivisjon-gellur ever. það er samt ekki eins að horfa á þetta á spólu og í beinni. jú... ég horfi á þetta í kvöld.
gærkvöldið
tónleikarnir voru hreint út sagt æðislegir! geðveik upplifun. hélt ég myndi andast í lokin, þeir tóku alveg brjálaðan sigurrósarendi og höllin ætlaði að springa. ég er ennþá með gæsahúð. svo fór ég með stebba, ólöfu, rúnari, halli og barða í bæinn. reyndum fyrst tvö r-listapartí, hús málarans og prikið, sem var engan veginn að gera góða hluti. fórum svo í d-listaparí, kaffibarinn og vegamót, það var sko allt annað og bara mjög skemmtilegt. xd!!!
hitti val frænda, rosa langt síðan ég hitti hann. hann er sko algjör meistari. hann er líka með rosa mikið hár :þ
hitti líka betu rokk, lofaði henni að skrifa í gestabókina hennar, gerði það áðan. endilega kíkja á heimasíðuna hennar, hún hefur alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja.
föstudagur, maí 24, 2002
sigurrós
er orðin rosa spennt, er nefnilega að fara á sigurrósartónleika í kveld, hrafnagaldur óðins.
ætla að drífa mig heim og gera mig sæta :-)
fimmtudagur, maí 23, 2002
starwars
stebbi bauð mér á starwars í gær (takk stebbi). mér þótti hún einstaklega skemmtileg, og hló mikið. þá aðallega að C3PO, sem er rosa skemmtilegur karakter, og svo af e-ju fríki, sem var e.k. geimvera frá afríku, og talaði sérhljóðalaust. ég var sko í hláturskasti yfir honum. gæinn sem leikur ani, er svona frekar skrítinn, fannst hann ekkert rosalega góður. greyið var náttúrulega að fara með alveg hrikalega dæaloga "you're in my very heart, tormenting me..." já, hann var svona frekar væminn og miður skemmtilegur. en annars þótti mér þetta mjög góð mynd.
pæja!
ómægot... er ég pæja, eða er ég pæja? ég var að flytja mig um set í vinnunni, er búin að vera á flakki, fékk að vera við skrifborð þeirra sem voru í fríi í það og það skipti. núna er ég komin með mitt eigið borð, og... mína eigin skrifstofu! jújú, skrifstofu með stórum stórum hornglugga og frábæru útsýni (er á 7. hæð). hérna sit ég við risastóra borðið mitt, við tölvuna mína, með símann minn (er ekki ennþá búin að komast að því hvaða símanúmer ég er með, en jæja), með stóra ofursjónvarpið (þetta er sko brjálað ofursjónvarp) og (ótengda) skannann minn. þetta er ekkert smá kúl, nema það að ég er strand í verkefninu mínu...
"Either BOF or EOF is True, or the current record has been deleted. Requested operation requires a current record."
...ef e-r veit hvað er í gangi þá endilega sendið mér póst.
þriðjudagur, maí 21, 2002
jalla! jalla!
við stebbi tókum sænsku myndina jalla! jalla! á sunnudaginn, algjör snilld! það versta var að ég náði ekki að horfa á hana alla, sofnaði. en það sem ég sá var sko algjör snilld, mæli a.m.k. með fyrri part myndarinnar. þegar ég fer að hugsa um það, þá man ég ekki hvenær það var síðast sem ég og stebbi tókum vídjóspólu og ég náði að vaka heila mynd. vá, hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að horfa á vídjó með mér. sorrí stebbi :-s
jamm
fékk einkunn fyrir lokaverkefnið á föstudaginn, 9 takk fyrir, var bara ánægð.
grillið á laugardaginn var alveg frábært, maturinn var ekkert smá góður. sævar fór á kostum við grillið, jón sá um álpappírinn og gerði það af stökustu snilld. maðurinn hennar tótu komst ekki, var víst e-ð upptekinn með sínum vinum. en það er alltílæi, við hittum hann bara seinna. svo djömmuðum við sotla stund heima hjá þorbjörgu og héldum svo nokkur í bæinn, á prikið nánar tiltekið, þar sem gullfoss og geysir voru að spila. þeir klikka aldrei. þeir spiluðu óskalagið mitt sem lokalag, "we are the world", það var geðveikt! góðir strákar. svo var farið heim í pizzu.
fimmtudagur, maí 16, 2002
gummi í ameríku
gummi sem var mér í bekk í mr fór til ameríku í fyrradag að heimsækja systur sína. var að hitta hann á msn þar sem hann sagði mér að hann hefði farið á amerískan "diner" þar sem þjónustustúlkurnar kölluðu hann "honey" og þjónarnir "dude". vá, ég væri sko í hláturskasti. kannski verður hann svona kani þegar hann kemur heim.
djö...
hef ekki enn fengið einkunn fyrir lokaverkefnið, fer á einkunnasíðuna á hálftíma fresti, en aldrei neitt. það er mjög gaman í vinnunni. ég er jú ennþá að vinna hjá s24, fæ nú að spreita mig í tölvugeiranum, smá tilbreyting frá viðskiptaþjónustunni. fékk strax verkefni, en það var að gera verkstjórnunarkerfi. bjó til gagnagrunn og vefsíðu sem vinnur á honum þar sem eru skráð inn verkefni sem þarf að gera og allar þær upplýsingar sem fylgja. svo er hægt að sækja verkefni í þennan grunn til að leysa og svo framvegis. þannig er haldið utan um þau verkefni sem þarf að gera, eru búin og svoleiðis. jájá, ég veit... mér finnst þetta a.m.k. kúl.
það er plönuð rosa grillveisla á laugardaginn hjá vinahópnum mínum. ætlum að grilla kjúklingabringur og humar, ummmmm... og við ætlum að drekka bjór, ummmmm... ég hlakka ekkert smá til. það eru boðaðir tveir nýliðar, en þeir eru sævar alabamamaður, en hann á heima, getiði hvar, í alabama, og spilar körfubolta. svo er það maðurinn hennar tótu sem kemur ef til vill. ég er alla vegana að reyna að fá hana til þess að bjóða honum, hann er sko nýr... tíhí. það væri nú skemmtilegt að senda henni póst og kvetja hann til þess að koma með kallinn :-)
þriðjudagur, maí 14, 2002
lokaverkefni - vinna
jæja, búin með lokaverkefnið og byrjuð að vinna. úffff, talandi um verkefnið. hópurinn minn flutti erindi um verkefnið í morgun að viðstöddum verkefniskennara (yndislegur) og prófdómara (dóni og dru...). við vorum öll voða fín, strákarnir í jakkafötum, allir nema einn, en hann var í venjulegum buxum, hvítri skyrtu og með grátt bindi, voða fínn bara. nema hvað, að þegar hann ætlaði að byrja að tala, sagði prófdómaradru... "hvað heitir þú aftur?"... "ég ætla að taka niður nafnið á þér því þú ert svo áberandi druslulegastur." ég átti ekki til eitt aukatekið orð. og ekki nóg með þetta, heldur stóð hann upp í miðju erindi okkar og hljóp fram á gang til þess að ná á hópinn sinn sem var að ganga fram hjá. og annað, hann hafði eiginlega ekki tíma til þess að hlusta á okkur, þurfti að vera annars staðar, svo hann stóð upp og tók saman áður en við höfðum lokið máli okkar. jamm, ég er svo aldeilis hlessa... mér fannst þetta allt vera svo mikill bölvaður dónaskapur. Við erum búin að púla yfir þessu verkefni stanslaust alla dag í 3 vikur, finnst við ekki eiga svona skilið. vona bara að einkunnin verður sanngjörn. jæja, nú er ég búin að ausa úr skálum reiði minnir, og líður mun betur... takk.
mánudagur, maí 13, 2002
afmæli
ég á afmæli í dag!!! verð uppi í skóla í allan dag að undirbúa kynningu á lokaverkefninu. vegna þessa ætlar stebbi að taka á móti gestum á 3. hæð landsvirkjunarhússins í dag á milli kl. 17 og 19. hann mun bjóða upp á kaffi og með því, þannig að gestir ættu ekki að fara svangir heim...
til hamingju ólöf og krisín með afmælið í gær.
til hamingju mamma og pabbi með afmælið í dag.
föstudagur, maí 10, 2002
zzzzzzzz...
núna er ég búin að vaka í nær sólarhring. klukkan er að verða 10 að morgni og ég ekki enn farin að sofa, brjáluð verkefnavinna í alla nótt. kerfið er tilbúið og aðeins eftir að prenta skýrsluna út og binda. get ekki beðið eftir því að komast heim að sofa. ég á pantaðan tíma í klippingu kl. 14 og fer svo á hr-djamm kl. 18:30. ég sef bara e-n tímann seinna :-)
fimmtudagur, maí 09, 2002
skil á morgun
síðasti dagurinn í verkefnavinnu þessarar annar. við erum ennþá vinir öll sömul, engir stórir árekstrar hafa komið upp. það kom reyndar upp ósætti í gær, ég missti mig gjörsamlega yfir icon-vali á hnappinn ' viðskiptavinir '. valið stóð á milli icons með karli og konu í bláum jakkafötum sem héldu á sitthvorri skjalatöskunni, annars vegar, og svarts taflpeðs, hins vegar. Hvort átti icon-ið að vera fólk, því viðskiptavinir eru fólk, eða peð, því viðskiptavinir eru peð??? ég hafði mjög sterkar skoðanir á þessu máli. þið megið giska á hvort icon-ið ég vildi hafa. en annars hefur verkefnið gengið vel, asp-síðan okkar er hérna . það má sko alveg gera allt á síðunni. ég ætla að benda á eitt sem fattast annars ábyggilega ekki, en það er rosa kúl easter egg á síðunni. hint... það tengist þremur línum sem eru alltaf í bakgrunninum... hint... og að þær renni allar saman í eina... hint... og að bíða í 5 sekúndur. reynið! ætla að halda áfram, ekki nema 17 klst. í skil...
mánudagur, maí 06, 2002
dagný, ég er sammála
dagný kolbeins skrifaði þetta í gestabókina mína:
"ég mæli með því að við höldum kveðjupartý á holtsgötunni áður en mellurnar selja....sammála?"
já, "mellurnar" eru að selja... ég styð þessa tillögu dagný :-)
sunnudagur, maí 05, 2002
úfffff... verkefnavinna
jæja, nú fer endaspretturinn á verkefninu að hefjast, allt að gerast. beta-prófun á þriðjudaginn, skil á föstudaginn. forsetinn kemur í heimsókn á morgun til þess að kynna sér verkefnavinnu háskólanema, fyndið. annars er það annað af mér að frétta að ég var að taka mína síðustu vakt á skemmtistaðnum nasa sem miðasöludrottning í gærkvöldi, þ.a. að nú er ég laus allar helgar ef þið viljið bóka mig... fyrstir koma, fyrstir fá :-) það kom alveg fullt af skemmtilegu fólki að heimsækja mig í gær í vinnuna, t.d. hann ómar berg, en af honum er það að frétta að hann er að fara til svíþjóðar á fimmtudaginn eftir viku, og verður þar í 3 daga á vegum ísal á námskeiði. hann ætlar líka að fara til mílanó í sumar að heimsækja hann ásgeir ingason sem vinnur þar á auglýsingastofu og lifir eins og kóngur. ómar er ennþá að leita að ástinni einu.
jamm, þetta var fyrir þá sem hafa ekki heyrt í honum ómari okkar... og já, hann bað að heilsa öllum, svona fyrir þá sem þekkja hann ómar. fyrir hina sem gera það ekki, þá er hann frægastur fyrir það að eiga ljósblá jakkaföt, bleika pífuskyrtu og hvíta slaufu (að mig minnir) og leika í myndbandi fyrir á móti sól, betur þekktur sem "afmælisstrákurinn". alltaf gaman að hitta hann ómar :-)


