þriðjudagur, apríl 30, 2002

holtsgatan til sölu

jæja, þá er komið að því. búið er að setja íbúðina á holtsgötunni á sölu, íbúð okkar allra. það er hægt að segja "it's the end of an era". hvað hefur maður ekki brallað þarna, það er ekki margt. ég held að allir í vinkvennahópnum hafi á einhverjum tímapunkti búið þarna. ég var hluti af hópnum sem flutti fyrst inn, ég, ágústa og þórhildur. Nafnið mitt er m.a.s. ennþá á dyrabjöllunni! þetta var þegar ég var að byrja í 4. bekk í mr. svo flutti ég út, og aftur inn í 5. bekk. hreint út sagt alveg yndislegur tími. ég á m.a.s. ennþá soldið af innbúi þarna. þar má helst nefna hillu á baðherbergi

bastborðið góða, sem má sjá hér undir prentaranum

(skrítið að það er ekki sýnt betur, massaborð) og ekki má gleyma eldhúsborðinu sem hún langaamma mín átti,

hún var víst mjög stór, því borðið er ábyggilega 1.70 m á hæð, náði manni undir handarkrika þegar maður sat við það! þar varð skúbí snakks til. og svo er það svefnubergið (a la vala matt). þangað hefur nú mörgum manninum verið landað... tíhíhí.

skemmtilegt hvað það er ógnarbleikt.
við eigum öll eftir að sakna þessarar íbúðar.
lego

jeeee... hvað er meira kúl en að vera geimlego!!!

You're the lego Space Man!
Strap on your helmet! You're the lego space man! You love technology, and look forward to the future. You're brave, active, and strangely attracted to shiny objects.

Take the "What Lego character are you?" test! by ctbx

mánudagur, apríl 29, 2002

gay

vá, hvað ég er venjuleg!



takið prófið

sunnudagur, apríl 28, 2002

grey

fann myndir af einu svona greyi...híhíhí. þetta er frekar sorglegt.
hotmail

þetta er óþolandi... helv... hotmail. ég er alltaf að fá einhvern dónapóst sendan á hotmailið mitt, samt er ég með síu sem á að sía frá allt svona rusl. núna upp á síðkastið hef ég verið að fá skuggalega mikið af svona "penis enlargement" póstum. djísösss!!! hef ekki við að eyða þessu rusli. hver fer líka í svona, hljóta að vera einhver algjör grey.

laugardagur, apríl 27, 2002

vörunúmer

sjitt... hversu mikið vesen getur verið í kringum eitt vörunúmer!
hópurinn minn er í upplausn vegna dálksins Vorunumer í töflunni Vara.
vona að við getum sameinast aftur í friði og hamingju.
úffffffffffflapúfffffffffff
"saumaklúbbur"

jei... ég er að fara í "saumklúbb" í kvöld. það er orðið allt of langt síðan við stelpurnar hittumst til að kjafta. ólöf fékk íbúðina hennar ágústu systur sinnar lánaða, og við ætlum að hittast þar. ég vona að ólöf geri svona nachos-ídýfu, uuummmmm... svo langar mig líka í mixtúru... og svona gott... og súkkulaðihjúpuð jarðaber...

fimmtudagur, apríl 25, 2002

ágústa

ég bað ágústu að senda mér mynd af sér, var að vonast eftir einhverju sossí, en nei... ágústa sendi mér fyrisætumyndina sína! hér er hún...

miðvikudagur, apríl 24, 2002

starfsmannapartí

mér er boðið í starfsmannapartí í kveld hjá s24, planað rosa djamm. er að suða í strákunum að þurfa ekki að mæta klukkan átta í fyrramálið...kommon, það er sumardagurinn fyrsti, frídagur! gengur e-ð erfiðlega. Finnst eins og ég sé að missa stjórnina á þessum blessaða hóp mínum, þeir eru hættir að hlýða mér :-(

þriðjudagur, apríl 23, 2002

meiri þórhildur

hei! fann meiri þórhildi. hér er hún með halldóri val. jesússss, hvað þú ert hlægileg...er þetta í rútunni heim á sólheima???

þórhildur

takk þórhildur fyrir að skrifa í gestabókina mína. þú varst að biðja um myndir. mér finnst þú svo sæt að ég ætla að setja inn mynd af þér, veit samt ekkert hver er með þér á henni. að sjálfsögðu ertu með bjór í hönd, það er ekki að spyrja að því ;-)



...takk tóta, þetta var mjög fallegt. finnst samt eins og þú sért að gera grín að mér :-s

mánudagur, apríl 22, 2002

sex and the city

frábært!!! mér finnst hún líka langflottust


Which Sex and the City Player Are You? Find out @ She's Crafty
the strokes

ég fór á strokes tónleikana þann 2. apríl, frábærir tónleikar. var rétt í þessu að ramba inn á "the strokes radio" sem spilar strokes og svipaða tónlist, er alveg dottin inn í það, brilliant! heimasíðan þeirra er líka kúl. ekki skemmir hversu sætir þeir eru nú allir, sér í lagi
djúlían kasablankas...

sunnudagur, apríl 21, 2002

gestabók

var að setja inn gestabók...
...allir sem vettlingi geta valdið ættu að skrifa e-ð fallegt í hana.
takk, takk.

föstudagur, apríl 19, 2002

lokaverkefni! lokaverkefni!

byrjaði í gær í lokaverkefni í skólanum. við eigum að hanna kerfi fyrir skiptibókamarkað í skólanum, bæði kerfisstjórnarhluta og vefhluta (.asp). spennandi, ekki satt. manni er skipað í hóp og lenti ég í hóp með þeim, ármanni, rúnari, gunnari, birni og pálma... jújú, ég er eina stelpan. hef bara gaman að því :-). en annars líst mér bara vel á þetta.
halló kalló bimbó.
rut farin að blogga...