sunnudagur, desember 08, 2002

rás 2 er uppáhalds útvarpsstöðin mín!
ég er búin að vera að hlusta á þessa snilldarstöð í verkefnavinnunni... alveg brilliant! hvaða önnur stöð spilar svona eiturhressar dægurlagasyrpur og er með þátt um lúdó og stefán? b.t.w. lúdó og stefán er held ég bara fyndnasta hljómsveit sem ísland hefur átt. sömdu þeir e-n tímann e-ð sjálfir, þ.e. e-ð lag? ég hef a.m.k. bara heyrt þá syngja fræg erlend lög með hreint frábærum íslenskum textum. hver kannast ekki við "nú set ég tvistinn út, og ég breyti í spaða" við lagið "let's twist again"? ég er búin að vera í hláturskasti yfir þessum lögum þeirra.
í gær var spilað lag sem hét "ducks are swimming in the water" sem mér þótti ógislega fyndið. mér varð hugsað til þess þegar ég og ágústa vorum að skauta e-s staðar á bakkanum og sungum hástöfum "endur út'á vatni syyyyyynda" eins og ásdís (minnir mig að hún heiti) hafði gert á e-rri jólaskemmtuninni soldið fyrr. okkur þótti þetta frumsamda lag hennar svo hlægilegt að við vorum alltaf að apa það eftir henni og veltumst alveg um af hlátri.