þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Jæja nú er mér øllum lokid!!!

Thad var keyrt á mig í gær, takk fyrir. Ég var ad theysa heim úr skólanum á bleika blossanum, med ljósin á ad sjálfsøgdu, thegar ég tók eftir bíl sem ætladi ad beygja yfir hjólastíginn. Hann stoppadi thannig ég gerdi rád fyrir ad hann hefdi séd mig og hélt áfram. En thegar ég var alveg ad koma lulladi bíllinn af stad yfir stíginn. Ég reyndi ad skrensa til ad forda árekstri en rann bara á blautu mailbikinu og í thann mund sem ég fór fram hjá bílnum slóst afturdekkid í studarann og ég flaug í loft upp ásamt hjólinu. Vid endudum svo í einhverri klessu spølkorn frá bílnum. Ég stód upp og skodadi mig adeins og komst ad thví ad ég var nokkurn veginn í heilu lagi, bara rispad hné og ónýtar buxur. Svo kom konan á bílnum, skrúadi nidur rúduna og spurdi hvort ég væri í lagi. "Ja, det er i orden", sagdi ég án thess ad vita thad alveg sjálfur. Thá komu tveir kallar advífandi til ad athuga med mig og spurdu mig hvort hún hefdi keyrt á mig. Konan vard greinilega eitthvad óróleg thví hún skrúadi aftur upp í flýti og hypjadi sig burt. Thad var thá sem ég tók upp hjólid á ný og sá ad afturgjørdin var næstum thví í U. Helv. djø. maar. Búinn ad slátra tveimur hjólum á thremur mánudum! Jæja, kominn á strætó sem er í sjálfu sér ekki svo slæmt. Ég ætla nú samt ad gefa mér smá tíma í kvøld til ad reyna ad lappa upp á garminn, thetta reddast.

Svo er thad Coldplay á fimmtudaginn, gledi gledi :D