Í gærkvöldi fórum við Rut út á Kastrup að ná í mömmu og pabba. Mjög gaman að hitta þau og kveðja til allra sem sendu okkur kveðju. Eftir að hafa snætt prýðis pizzu með Daða og Hjördísi ákváðum við að skella okkur í bæinn að prófa jólabjórinn. Ég, Rut, m&p röltum aðeins um og fundum loks laus sæti á einhverjum pöbb. Þar sátum við í góðu yfirlæti og drukkum þennan líka frábæra jólabjór, hlustuðum á gamlan feitan kall spila Kim Larsen á skemmtara og spjölluðum við nýja besta vin hans pabba. Eftir ölinn var bara haldið heim á leið.
Ég fékk smá pakka frá m&p og þar á meðal var nýi Sigur rósar diskurinn, (). Búinn að renna yfir hann og lýst bara vel á. Mæli sérstaklega með textunum!!! Je sæló!
Ég fékk smá pakka frá m&p og þar á meðal var nýi Sigur rósar diskurinn, (). Búinn að renna yfir hann og lýst bara vel á. Mæli sérstaklega með textunum!!! Je sæló!


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim