föstudagur, nóvember 15, 2002

ég er komin heim!
flaug frá kóngsins köben á mánudaginn síðasta. það komu sko alveg tár þegar ég fór, það var svo yndislegt að vera þarna. nú er bara spurningin, hvenær fer ég næst og hvert.

ég kom bara ein heim, skildi stebba eftir í skókassanum, það var ekkert rosalega skemmtilegt. en það er bót í máli að ég er með alla hina, mömmu, pabba, krúið mitt... þ.a. mér leiðist ekkert svo mjög. svo byrja ég líka í prófum á þriðjudaginn næsta þ.a. það er nóg að gera hjá mér í lærdómnum, eða ætti a.m.k. að vera það. ég held alla vega að stebba leiðist meira en mér... ég fæ t.d. ósjaldan frekar skrítin sms eins og "ég var að skera chillí og boraði í nefið á mér, það var ekki gott." hehehehe, alveg fyndið... ábyggilega erfitt að vera svona mikið einn.

ég kom heim með 2 stappaðar ferðatöskur, prentara og heilt fjall af drasli í handfarangri. það er ekkert smá mikið sem fylgir manni. ég held að ég hafi pakkað nokkuð skynsamlega, notaði næstum öll fötin mín, og næstum alla skóna mína líka ;-)

mér finnst ég vera að missa af svo miklu. mánudaginn sem ég fór heim, fóru stebbi ásamt baldri, jóa og amagerdrengjunum á supergrass-tónleika, það hefði nú verið gaman að sjá þá, á miðvikudaginn var baldur svo að dj-a á stúdentahúsinu, ég var sko búin að bíða þvílíkt eftir því, hann ætlaði að spila gleðibankann, besta íslenska lag ever! svo í kvöld er köben luuuv partí á amager hjá þeim drengjum, því hafði ég líka beðið óþreyjufull eftir. ætli þetta hafi verið planað... hmmm...

"nei, ég ætla ekki að spila á stúdentahúsinu fyrr en rut er farin heim."
"nei, við skulum ekki halda köben luuuv fyrr en rut er farin heim."
"no, let's not play in copenhagen until rut has gone home."

það væri sko leiðinlegt!

það er hægt að fylgjast með undirbúningi köben luuuv partísins hér.
ég fer þá bara að læra... eða bara horfa á popptíví... rosalega er auðvelt að festast yfir því. það er svo lítið annað hægt að gera, nú þegar búið er að selja bílinn minn og soleiðis. hvað gerir fólk sem á ekki bíl eiginlega allan daginn? ég skil þetta ekki.