þriðjudagur, október 29, 2002

mr. deeds er held ég leiðinlegasta mynd sem ég hef séð. man... hún er leiðinlegra en allt leiðinlegt. reyndar er steve buscemi algjör snillingur og mjög fyndinn í henni sem kreisí æs, viðurkenni að hafa argað úr hlátri... en allt hitt, rosalega leiðinlegt. við horfðum á alveg snilldarsjónvarpsefni á sunnudaginn þó. top 20 fashion disasters á vh1. þá var verið að spila myndbönd... já, með tísku-disaster. við vorum í hláturskasti. eitís-myndböndin réðu þar ríkjum, voru greinilega mestu disasterin. fyrir utan eitt myndband sem var mjög ofarlega, 5. sæti eða e-ð, það var fyrsta myndbandið sem spice girls gerðu... vá, þvílíkt disaster! í fyrsta sæti var cameo og öðru milli vanilli, algjör snilld. annars fannst mér cher eiginlega mesta disasterið þegar hún var í netasokkabuxum og bandi...