hefði ég verið á þessum leik þá hefði þessi flaska pottþétt farið í hausinn á mér.
þetta byrjaði allt þegar ég var u.þ.b. 16 ára á sveitaballi og e-r kjáni henti flösku upp í loft og hún lenti í hausnum á mér. ég vankaðist smá, en brosti svo bara að þessu, ég meina... what are the odds! ég man einmitt eftir því að hafa sagt við stelpurnar að ég væri með þessu búin að koma í veg fyrir það að ég fengi e-n tímann aftur flösku í höfuðið og ábyggilega líka að nokkur af þeim fengi flösku í höfuðið, mér fannst líkurnar á þessu bara svo litlar. en nei... síðan þarna þá er eins og ég sé e-ð skotmark fyrir kjána sem kasta flöskum til himins... þær virðast bara allar lenda á hausnum á mér! æm not kidding jú! ég þekki ekki neinn annan sem hefur fengið flösku í höfuðið, hvað er málið? á þjóðhátíð eitt árið fékk ég botninn á plastflösku svo fast í ennið að ég endasentist yfir alla brekkuna og rotaðist... það var sko ekki falleg sjón. einu sinni var flaska brotin á hausnum á mér... svona gæti ég haldið endalaust áfram. einu sinni varð þetta svo slæmt að ekki nóg með að fá flöskur í hausinn þá var ég líka farin að lenda undir fuglaskít... jújú, ef fugl kúkaði á flugi, þá lenti það ýmist á bílnum mínum eða hausnum á mér. þetta var frekar leiðinlegur tími.
ú, ég fékk líka einu sinni remolaði í hausinn.
en fólk, hættiði að henda flöskum til himins!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim