baldur var í sambandi við okkur í gær og sagði okkur að hann væri að fara á steriobar ásamt nokkrum útlendingavinum sínum, bauð okkur að koma líka. langt síðan við fórum út á lífið, skelltum okkur því. á steriobar hittum við fyrst adda sem var þar með e-rri íslenskri vinkonu sinni. það hvílir greinilega e-r bölvun á honum því tösku stelpunnar var stolið! þ.a. þetta var smá deisjavú... við að öll að leita að týndri tösku.
[note to self: ekki fara með tösku á djammið með adda]
svo loksins kom baldur... það var víst e-ð erfitt að yfirgefa áfengið og íslenska hákarlinn heima... óskiljanlegt! við skelltum okkur öll á neðri hæðina þar sem 2 plötusnúðar voru að spila... algjörir snillingar! loksins, loksins... heví kúl staður, sem spilaði alveg heeeeeví kúl tónlist. tek til baka öll þau skipti sem ég hef sagt að danir hafi lélegan tónlistarsmekk, því það var sko ekkert að tónlistarsmekknum hjá þessum baunum. það er mjööööög langt síðan ég dansaði svona mikið... alveg brill! ég hugsaði mikið til rástu þegar common people var spilað... ragnheiður, við vorum langflottastar! hehehe.
baldur, þú ert algjör snillingur að draga okkur þangað... þetta verður sko planið næstu fimmtudaga, þangað til ég fer heim... eftir mánuð! úffff, hvað tíminn líður hratt, alltof hratt.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim