við stebbi erum búin að vera eins og tvær eldingar um kaupmannahafnarborg síðustu daga. á föstudaginn lögðum við af stað frá lyngby á hjólunum okkar... við vissum ekki fyrr en við vorum komin alla leið niður á nörrebro. já, ef ég gæti bara sýnt ykkur fjarlægðina... á ágætiskorti ca. 18 cm... það er a.m.k. rosa langt. við nörrebro stoppuðum við og opnuðum einn öl... sorrí... ég er farin að fá skammir úr ýmsum áttum vegna þessa öltals míns. pabbi hringdi í mig í gær og var að spyrja... hvurslags hvurslags. alla vega, svo fórum við niður í bæ og enduðum svo á amager á hjá hagfræðistrákunum. við hjóluðum sem sagt frá lyngby og e-t lengst á amager. á góðu korti alveg ca. 29 cm! ég er að segja það... ýkt dugleg! endaði svo með því að við tókum lestina heim... þetta var fínt á einum degi.
við tókum laugardaginn snemma og skunduðum niður á rådhuspladsen um hádegi, stebbi fór í bolta með jóni, kidda og stebba jóns, og ég tók rúntinn, þennan vanalega, h&m, zara og meira h&m. sá m.a.s. eddu björgvins, hún er sem sagt hér í danmörku þessa dagana.
svo hjóluðum við stebbi í christianiu... þvílík vonbrigði!!! þegar ég var yngri horfði ég á hárið u.þ.b. 113 sinnum, var alveg búin að sjá fyrir mér settið úr hárinu þarna inni... en neeeeiiiiiiii. þarna var bara subbulegt, rusl, allt út í veggjakroti og unglingar að selja hass. fann enga hippa, sá engin blóm eða písmerki. vá hvað ég var e-ð alveg að misskilja þetta christianiu-dæmi. ég varð sem sagt fyrir miklum vonbrigðum með þetta.
alla vega... amager-strákarnir buðu okkur svo í mexíkóskt og... gos. tókum svo lestina heim.
þar sem hnakkurinn á hjólinu mínu er ekki gerður til þess að sitja á, þá er ég komin með allrosalegt rasssæri að það hálfa væri nóg. ég hét því þegar ég lagði hjólinu mínu í gærkvöldi að ég skyldi ekkert hjóla, hvorki í dag, né hinn, né hinn, né hinn, né hinn... þetta yrði bara að fá að jafna sig. stebbi plataði mig svo til þess að hjóla með sér í bakaríið í dag... en ég skal ekkert hjóla á morgun!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim