stefán komst ómeiddur heiman frá jörgen vini okkar... og með tvö hjól, jájá. hann dílaði við hann og keypti tvö stykki á 900 danskar krónur, kjarakaup. ég átti eiginlega ekki til orð þegar ég hitti stebba alveg skælbrosandi með nýju hjólin... hann var svo ánægður. aldrei á ævinni... nei... aldrei á ævinni hef ég séð eins ljót hjól og þau sem hann keypti... ég vissi ekki að það væru framleidd svona ljót hjól. ég var í hláturskasti, manóman. stebba hjól er svo ógislega illa grænt, rosa mjótt með teipuðu stýri, mitt er skær skær skær bleikt, en samt svona ýkt upplitað sum staðar, mjöööööög ljótt litað, og ýkt mjótt. ég ætlaði ekki að hætta að hlægja. "keyptiru það ljótasta sem hann átti!?!" svo fórum við og keyptum lása og fram- og afturluktir (næstum jafndýr og hjólin sjálf), og hjóluðum svo af stað heim. það ætlaði ég ekki að geta þar sem hjólið mitt var svo rosa mjótt og ljótt að ég ætlaði ekki að geta haldið jafnvægi, hló alla leiðina. en ég hef eignast hjól... jei... það er ljótast í heimi... en jei... nú get ég hjólað alveg fullt. við erum að spá í að hóa í hann kidda og bjóða honum í hjólatúr... hann keypti sér nebblega mjög ljótt og mjótt hjól á lögguuppboði um daginn. það er mjög gult og blátt, gengur undir nafninu svíahjólið. við yrðum rosalegt hjólagengi mar!
ég hefði viljað fara með stebba heim til þessa jörgens mand-ho, ég hefði ábyggilega verið í hláturskasti. fréttir: það var kvenmaður inni hjá honum! þ.a þið sem voruð e-ð að spá þá held ég að kallin sé barasta genginn út, já seisei. heimiliði hans var víst mjög fyndið... og garðurinn líka, allt fullt af hjóladrasli alls staðar, hann gerir víst ekkert annað en að kaupa draslhjól og gera við þau. garðurinn hans var því ekki svo fallegur eins og hann laug... já laug... á heimasíðunni sinni, og þessi tómataræktun... bara pickuplína held ég. en það sem mér þótti alveg langsamlega fyndnast í lýsingunni hans stebba var að hann geymdi verkfæri í eldhúsofninum! heheheheh... ýkt fyndið. "hmmmm... hvar á ég að geyma þennan skiptilykil? í ofninum auðvitað!" heheheheheheh... ég var í hláturskasti. hver geymir verkfæri í ofninum sínum? konan var e-ð að vesenast í eldhúsinu og ofnaði ofninn. þar tók hún bara út skrúfjárn, bor, hamar og e-ð alveg endalaust... hehehehehe.
jörgen kallinn... ha.
en ég ætla að reyna að setja inn mynd af okkur á hjólunum sem fyrst :-)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim