mánudagur, september 30, 2002

sigrún tengdó hringdi í okkur um daginn til þess að segja okkur það að laufey frænka stebba, mamma hjördísar, væri á leiðinni til köben í stutta heimsókn. sigrún ætlaði að athuga hvort það væri e-ð sem við óskuðum okkur og hún gæti þá sent með laufeyju. erfið spurning... ef maður á eina ósk, hvers óskar maður sér? ég var ekki í neinum vafa... ss-pylsusinnep og lifrapylsukepp! ég er búin að bíða svo spennt síðan okkur barst þetta símtal... pakkann fengum við svo áðan... jei! sinnep og lifrapylsa í morgunmat hjá okkur... eða... en þetta var alveg frábært. get ekki beðið eftir því að elda pylsur og fá með þeim alvöru pyslusinnep, og að elda grjónagraut og hafa með honum kalda lifrapylsu... ööööömmmmm. takk sigrún og laufey (",)