Ég verð bara að koma minni hlið á votta-sögunni á framfæri. Þannig var að ég rölti út á eldhús að gera eitthvað sniðugt og svo á leiðinni til baka sá ég hvar tveir skuggalegir menn stóðu og voru að spjalla við nágranna minn. Ég var ekki lengi að leggja saman tvo og tvo og sá strax að þetta hlytu að vera vottar. Svo kom ég inn og sagði Rut að við ættum von á heimsókn von bráðar,... frá VOTTUM! "iiiiiiiiii, ýkt skemmtilegt!!! förum og tölum við þá, koddu með!!!" voru orð Rutar. Og já fyrr en varði stóðum við bæði í dyragættinni að spjalla við Morten og Prince. Og ó já, þeir eru að fara banka upp á næsta laugardag. Get ekki beðið...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim