mánudagur, september 16, 2002

fyrir þá sem vilja kannski e-n tímann hringja í okkur þá erum við komin með ný dönsk símanúmer.
rut +45 61704039
plebbi +45 61678323
annars hringir aldrei neinn í mig... nema kannski stibbi í mesta lagi. jú um daginn þá var ég með missed call úr e-ju númeri sem ég þekkti ekki. það var ekkert skrítið þar sem númerið var súrínamskt... eða e-ð álíka. var mjög svekkt að hafa ekki náð símtalinu, hefði þótt það mjög fyndið.
það var líka í síðustu viku sem kollegi-síminn okkar hringdi. ég fékk næstum hjartaáfall, vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, ég veit ekki einu sinni númerið í þessum síma! þá var það kallinn niðri sem var að biðja mig að sækja tösku sem við fengum í pósti. svona er maður nú vinsæll og skemmtilegur, hrekkur næstum upp af ef síminn hringir því það gerist svo... oft. seisei.