þá er það byrjað... ég og stebbi fórum í dag og keyptum okkur skó. fyrst ég er fallin í svaðið, dreg ég hann bara með mér. við erum bara að reyna að tapa ekki kúlinu hér í veldi dana. neinei... þetta var liður í því að fagna árs ammæli okkar. ég fékkk skó... hann fékk skó... ég hefði ekki getað ímyndað mér betri leið til þess að fagna... heheheh (",) við erum rosa pæjur í þeim hehehe, aðallega stebbi pæja... fórum líka á laugardaginn rosa grand út að borða á ítalskan stað, fengum okkur forrétt sem var mjög skrítinn... súr paprika, ótyggjanlegt kálfakjöt, svínakjöt í frystihússósu og e-ð með sogskálum. ég hugsaði mikið til pabba, honum hefði ábyggilega þótt þetta ýkt gott, en ég ætlaði sko ekki að borða e-ð með sogskálum! svo fengum við okkur geðveika pizzu og hvítvín, og kaffi í eftirrétt. sátum þarna alveg heillengi... þangað til við rúlluðum út... vorum orðin svo spekuð. fórum svo á nýja uppáhaldsstaðinn okkar, zoo-bar, og hlustuðum á nýja uppáhaldsplötusnúðinn okkar, boom boom... hann var sko mjööög feitur, alveg frábær. við ætlum að gerast grúppíur hjá honum... erum alveg 100% sjúk í hann.
takk fyrir mig, elsku stebbi... þú ert yndislegur (",)
takk fyrir mig, elsku stebbi... þú ert yndislegur (",)


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim