þriðjudagur, september 10, 2002

amager-strákarnir, ingó, stebbi, kiddi og jón eggert, héldu matarboð fyrir vini og vandamenn á laugardaginn. í matinn var pizza a la ingó, hann býr botninn sko til sjálfur og allt (hehehe), ýkt góð, í drykkinn var bjór, hvítt, rautt, og bara allt held ég, líka ýkt gott. fyrir utan gestgjafana voru þarna ég, stebbi, addi (e-r sem ég þekki ekki svo mjög), ulf (sem ég þekki heldur ekki svo mjög), guðrún (verkfræðiskiptinemi í DTU) og íris (lyfjafræðiskiptinemi í e-jum pharma-skóla), hafnfirðingur eins og ég. þarna lentum við á rosa skralli og miklu tjútti, sumir meira en aðrir, en 2 dauðsföll áttu sér stað. verst að ég gleymdi myndavélinni minni hjá strákunum og annað dauðsfallið hyggst eyða öllum sönnunargögnum (hint hint jón eggert...).
eftir mikið tjútt á amager fórum við í byen, hittum fullt af fólki, þar á meðal sam og mike (dtu-skiptinema). það var mjög erfitt að draga stibba heim, hann og strákarnir vildu nebblega ólmir fara með leðurhúfurnar sínar á stað sem heitir the cock-pit... grunar að það sé alveg þrælsnúinn bar... hmmmm.
get ekki beðið eftir næsta amager-partíi.