algjör snilld! stebbi sá auglýsingu í skólanum frá e-jum dönskum jörgen þar sem hann var að auglýsa hjól til sölu. þar sem við erum að kanna hjólakaup þá sendi stebbi honum póst á ensku þar sem hann spurði um þessa hjólasölu og heimilisfangið til að koma og skoða. svarið kom svo í dag: "JYS I AM MAND HO HAVE BIKES" og heimilisfang og sími undir.... hehehehe. við erum búin að vera í hláturskasti yfir þessum "mand ho" í allan dag. hversu lesblindur getur einn maður verið! þetta er alveg búið að bjarga annars leiðinlegum reikniritaskilaverkefnisdegi. við föttuðum svo ekki fyrr en áðan að neðst í bréfinu hans er slóð á heimasíðuna hans, sem við að sjálfsögðu þurftum að skoða... menómen. fyrir utan það að þetta er mjöööög svööööl síða... þá er þetta svona einkamálaauglýsingarsíða... hann er sem sagt að leita að konu... mjög despretlí. einn besti frasinn á síðunni er "I A MAND IS LOOKING A WOMEN,AND JOU LIKE ROMANTIC&CAN COOK,HAVE A GOOD HEART"... aaaahahaaaahaaa... við fengum eilífðarhláturskast... hver fellur ekki fyrir svona? endilega skoða heimasíðuna hans hér og hér, og sendið honum línu ef þið verðið sjúk í hann... hehehehehe...
kannski erum við ýkt vond og maðurinn búinn að vera hikstandi í allan dag... en vá...
kannski erum við ýkt vond og maðurinn búinn að vera hikstandi í allan dag... en vá...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim