fimmtudagur, ágúst 15, 2002

við fljúgum út á föstudaginn 23. ágúst kl. 16:10 og lendum því e-n tímann á föstudagskvöldinu í danmörku. þetta skapar smá problem þar sem við getum aðeins nálgast lykilinn að íbúðinni okkar á skrifstofutíma. þ.a. við verðum að öllum líkindum heimilislaus yfir helgina. skrítið að það skuli ekki vera hægt að fá lykilinn sendan í pósti... vell. gæinn á kollegi-inu ráðlagði okkur að sækja um "buddy" og hann gæti þá jafnvel sótt lykilinn fyrir okkur. þetta finnst mér með eindæmum sniðugt. ekki nóg með það að hann gæti sótt lykilinn fyrir okkur og komið þannig í veg fyrir helgarheimilisleysi, heldur yrði hann okkar buddy alla önnina... heheheh. við sækjum sem sagt um e-n danskan dtu-nema til að vera buddy-inn okkar. alveg brill!
hvernig fólk bíður sig fram í að vera svona buddy? hmmmm... mér dettur bara í hug svona nördar sem vantar vin, e-n til að tala við... um allt... endalaust! það væri alveg fyndið að fá e-n soleiðis sem yrði svo sjúkur í okkur... svona cable-guy-gæi... hehehehehe.
en ég er alveg sjúk í að sækja um svona, kannski eldar hann og tekur til... hver veit.