síðasti dagurinn í vinnunni í dag... jei. mér líður samt frekar... nei, mjög illa. mér er illt í hálsinu, höfðinu, eyrunum (mér verður sko aldrei illt í eyrunum) og með mesta kvef heims. fólk sem ég tala við í símann er farið að hlægja að mér, "ertu soldið kvefuð, vinan?". lenti í mesta n-og-m-samtali áðan, sem væri sko alltílæi... ef ég gæti sagt m og n!!! maðurinn fékk alveg hláturskast. ég reyni að forðast þessi m-og-n-orð eins og ég get. en lítum á björtu hliðarnar, ég vinn hjá "s24, rut", en ekki "netbankinn, rut" og ég heiti rut en ekki n-eða-m-eitthvað.
með réttu ætti ég að vera heima í dag, og ef ekki væri fyrir kökuna sem ég bakaði í gær (maður þarf alltaf að koma með köku þegar maður hættir) og þetta væri ekki síðasti dagurinn minn, þá væri ég heima núna, absólútlí. en með verkjalyf í annari og snítupappír í hinni reyni ég að þrauka þetta... kommon, þetta er nú síðasti dagurinn minn... jeeeeeeee (",)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim