föstudagur, ágúst 30, 2002

á miðvikudaginn fórum við í túristaferð með hinum útlendingunum í dtu, bátsferð á sýkjum kaupmannahafnar. mér þótti það mjög skemmtilegt. þegar báturinn sem við biðum eftir kom, var okkur vinkað. þá voru það kiddi og jón eggert sem voru að koma úr siglingu með útlendingunum sem eru með þeim í skóla, cbs. mér þótti mun fallegra fólk í þeirra hóp heldur en okkar... well. um kvöldið fórum við svo á studenterhuset þar sem var skiptinemakvöld, sem mér þótti alveg mjög fyndið. við hittum fullt af ýmist fyndnu eða hlægilegu fólki þar, en mér finnst bæði skemmtilegt. við vorum aðallega með nýju vinunum hans stibba (já, hann er búinn að eignast tvo vini... :-) ), þeim mike frá buffalo, new york, og ítalanum aronne sem er frá florenz. en þarna inni hittum við meðal annars, frakka sem mér þótti mjög hlægilegur því hann talaði ensku með svo rosalega frönskum hreim, sagði s í staðinn fyrir th, somesing í staðinn fyrir something og anysing í staðinn fyrir anything... ég var í hláturskasti. og annan frakka sem var svo stoltur af dönskunni sinni sem hann var búinn að læra á litla dönskunámskeiðinu sem hann var á... jújú, hann kunni "hvad hedder du?" "hvor bor du?", en aronne felldi hann á "kan du spille bordtennis?"... hehe... þurfti ekki mikið til. skemmtilegast var að hitta skotann sam, en hann kenndi okkur að blóta á skosku, mér fannst það geðveikt! "fukkin sssccheit, ðesss bírrr teists læk pessss!". vonandi hitti ég hann í kvöld í skiptinemapartíinu, þá get ég sýnt honum hve vel hann hefur kennt mér að vera ruddi... hann á eftir að springa úr stolti.