fimmtudagur, ágúst 01, 2002

komst að því í gær að þungatökmörkun í fluginu er 15 kg á mann. ok... hvort á ég að taka með mér bjór eða hlý föt? hmmmm... bjór... hlý föt... bjór... hlý föt.
rúna frænka er yndisleg og býr svo heppilega, eða alveg rétt hjá ríkinu í vestmannaeyjum. hún ætlar í ríkið fyrir mig og stebba og kaupa fullt af bjór, jei! þ.a. ég get tekið með mér hlý föt... og kannski eina flatköku.
ég frétti frá rúnu frænku í gær að það væri komið fullt af litlum tjöldum niður í dal. jeremías! ætlar fólk að vera þarna í viku eða? eins og vestmannaeyjar er yndislegar, en vika í tjaldi! ég held ekki.
eiríkur már og co. fóru í morgun, ætli þeir séu ekki bara nýkomnir eða rétt ókomnir. eiríkur er líka yndislegur og ætlar að sækja okkur á flugvöllinn á morgun. jei!
ég er orðin svo spennt!