mánudagur, ágúst 12, 2002

jæja... tók síðasta niðri-í-bæ-djamm mitt í soldið langan tíma um helgina. þetta var nebblega næstsíðasta helgin mín á íslandi næstu 3 mánuðina, næstu helgi verður fagnað úti á landi.
ég get ekki sagt annað en ég hafi skemmt mér alveg brill. ég held ég hafi farið 3 sinnum í bæinn í allt sumar, samt búin að skemmta mér alveg helling, bara búin að vera dugleg að fara út á land og alls konar soleiðis. það er örugglega þessum litla fjölda bæjarferða að "kenna" að það var svona gaman um helgina. mér fannst ég ekki vera að endurtaka sama hlutinn í billjónasta skiptið eins og svo oft er þegar maður fer í bæinn, maður er nebblega alltaf þar.

á föstudaginn elduðum við stebbi spaghetti handa okkur og steinari. það var helst til of mikil sítróna í því, þannig að við urðum öll mjög súr... hehehe... undo. eftir partí með steinari og félögum hans skunduðum við á oro í austurstrætinu (þar sem rex var) og drukkum þar með halli, barða, óttari, berki, sigga zoom og ísgerði, í boði halls... takk hallur. fórum svo á hverfisbarinn þar sem var svaka stuð. bragðið "höztl og ditz" virkaði tvisvar, þ.e. að höstla drykk og ditsa svo... hehehe, ég var mjög sátt við það... var samt engin tík eða neitt.. ég og stebbi fórum hamförum á dansgólfinu, annað eins hefur varla sést. fórum svo heim með dýrasta taxa heims, 2.380,- krónur upp í breiðholt, man! stoppuðum á hróa og sóttum pizzu, en vegna mikillar ölvunar gátum við aðeins borðað sitthvora sneiðina, trúiði þessu! ég sem er svo mikil pizzukona! en það var bara betra þegar við vöknuðum daginn eftir, öömmmmm.

á laugardaginn fór ég í "óvænt-afmælispartí" hjá mariko. mjög fyndið... þegar hún labbaði inn í salinn kölluðu allir "óvaaaaííííínt!" með áherslu á a-ið og í-ið, "óvænt!", í staðinn fyrir "surpræs!". alltaf sniðugt þegar svona útlensku er snúið yfir á okkar ástkæra tungumál. en veislan var mjög flott, árni var greinilega ekkert að spara. þarna var drukkið, etið og dansað til kl. 3, allt í boði. það er alltaf kúl.
vegna taps í keppninni "þægilegustu skórnir" (en ég var pæja) og ölvunar (þetta fría áfengi...) þurfti ég ég að fara heim. stoppaði samt aftur í pizzu... hehehe, jeeeeeee.

í gær afrekaði ég svo heljarinnar tiltekt í herberginu mínu og eina þvottavél, svona til að gleðja mömmu. sá svo myndina minority report. mér fannst hún alveg geðveik! mæli eindregið með henni, mjög flott framtíðarmynd.
ég er líka ógnarþreytt núna. úfffffffff...
en helgin var góð :-)