föstudagur, ágúst 23, 2002

búin að vera á þeytingi alla vikuna, mínir uppáhalds staðir hafa verið bankinn, skólinn og hinar ýmsu verslanir. en ég held að það sé bara allt klárt fyrir utanförina.
flugið mitt heitir fi212 og á að fara klukkan 16:10, en viti menn... það er örlítil seinkun, eða rétt um 7 klukkutímar! týpískt, finnst ykkur ekki? það er sem sagt áætlað að við förum í loftið um klukkan 11 í kvöld. ég er því bara að tjillja heima með töskunum mínum, fjör.
upphaflega planið var að lenda kl. 9 í kvöld og taka þá strætó/lest að sækja lykilinn okkar og svo beint á kollegiið og koma okkur fyrir. en við lendum ekki fyrr en um miðja nótt þegar flestar samgöngur á landi eru niðri og lendum þannig í smá bobba. en þar sem þetta er það mjög mjög seint þá er eiginlega bara næstum því kominn dagur og strætó því aftur farinn að ganga. heppin? já sei sei.
mamma ofurpakkari hjálpaði mér með farangurinn í gærkvöldi. við sprengdum næstum því stóra ferðatösku, hún vigtaðist 28 kíló, en það má víst bara fljúga með 20 kíló, og það komst meira að segja ekki allt í þessa stóru tösku, þrátt fyrir 3 minnka-farangur-yfirferðir. þ.a. það leit út fyrir að ég væri að fara að ferðast með ca. 40 kíló, eða tvöfalt það sem má ferðast með og því borga milljónir í yfirvigt, eða a.m.k. mjög mikið, hehe. ákveðið var að setja minna nauðsynlegt dót í aðra tösku sem verður send á eftir okkur. ég skil þetta samt ekki. ég er sko bara með það allra nauðsynlegasta, alveg satt. ég tók reyndar soldið mikið af skóm... en samt bara það allra nauðsynlegasta af hinu. skil'etta ekki! en well.
hvað á ég af mér að gera í dag, ég er alveg reddí. vill einhver vera memm?