mánudagur, júlí 08, 2002

verslunarmannahelgin hefur verið plönuð. ég hef ákveðið að breyta ekki út af vananum þetta árið og fara til eyja... supplæs supplæs. þetta verður þá í sjötta skiptið sem ég fer á þjóðhátíð... það er bara svo skemmtilegt. var að panta flug frá bakka á föstudeginum milli klukkan 5 og 6. pantaði fyrir mig, stebba og ólöfu, eins gott að þetta fólk komi... þorbjörg og jón fljúga um morguninn og rúnar á fimmtudeginum. ef ég þekki hann rétt þá þarf hann ábyggilega líka að fara síðastur frá eynni... algjör. ég er búin að fá gistingu hjá frænda mínum, rétt hjá dalnum... bara kúl. orðin alveg heví spennt.

það vantar eina svona skítaútihátið þetta árið. vona að pakkið sem sótti, eða eyðilagði, eldborg í fyrra fari bara úr landi eða e-ð, að það komi a.m.k. ekki til eyja. vil ekki sjá svona subbuskap...