það var geðveikt veður í gær... geðveikt sundveður. því ætlaði ég að plata e-ja af mínum yndislegu vinkonum í sund, þar sem fraukinn lá heima með pjúkupest. ég hringdi í allar vinkonur mínar í heiminum... og ekki ein svaraði. leiðinlegt! endaði með því að ég fór ein í sund, frekar sorgleg. ég var samt rosa dugleg. eftir sólbað í pottinum skellti ég mér í laugina og synti heilar 12 ferðir, á þessari líka blússandi ferð... jájá. ég ætlaði sko að vera svaka heilbrigð, búin að taka sundlaugarpakkann, stefndi á e-ð mjög hollt og gott í kvöldmat. grillaðir hamborgarar og franskar, þenkjú verrí næs! alltílæi, byrja bara á morgun...
veit ekki hvað ég hef eiginlega sagt þetta oft. nákvæmlega engin sjálfstjórn.
veit ekki hvað ég hef eiginlega sagt þetta oft. nákvæmlega engin sjálfstjórn.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim