mánudagur, júlí 22, 2002

sjitt er ég orðin geðveik? lyftan talaði við mig á leiðinni upp á skrifstofu, ég er alveg viss um það! ég var í sakleysi mínu á leiðinni upp á 7. hæð, alein. þá segir lyftan við mig "er öryggiskerfi lyftunnar í lagi?". mér dauðbrá, en sagði ekki neitt því ég vildi ekki viðurkenna alveg strax að ég væri farin að heyra raddir. þá talaði lyftan til mín aftur, "halló!" sagði hún. ég horfði upp í loftið og sagði líka bara halló. "er öryggiskerfi lyftunnar í lagi?" sagði hún þá aftur. "jájá" segi ég. "takk fyrir" svarar hún þá. "alltílæi" segi ég þá um leið og lyftan opnast á 7. hæðinni þar sem ég á að fara út. þetta var frekar spúkí, svona að tala við "þá", þúst þá sem eru alltaf að fylgjast með manni... hehehe. en þetta var alveg fríkí.