fimmtudagur, júlí 11, 2002

sá alveg massafyndið atriði fyrir utan dána nanoq áðan.
það voru ca. 10 íslenskir krakkar að leika keppendur frá hinum ýmsu evrópulöndum sem áttu að hafa ferðast til íslands til að keppa á móti í e-ju sem mér heyrðist heita e-ð f og e-ð l og e-ð u, kýs að kalla það flumm, sem sagt mót í flummi (eða e-ð... hehehe). þau voru í svona hvítum bréfsamfestingum (eins og helena, heiða, ásta og fleiri góðar klæddust á diskóteki í barnaskólanum á eyrarbakka árið 1987 og þóttu alveg massakúl!) og aftan á þá var búið að mála fána og nafn landsins "þeirra" og svo nafn þeirra sjálfra. þegar ég byrjaði að horfa á þetta þóttust þau öll vera að hita upp fyrir e-n rosa íþróttaviðburð, þ.e. þennan flumm-viðburð, mjög fyndið. svo byrjaði sjóið og þá fattaði ég að þessi flumm-keppni var einfaldlega ljótu-dansa-keppni. þá áttu þau sko að vera fólk sem var flumm-meistari síns lands og voru að koma til íslands til að keppa fyrir hönd þess, en þetta voru sko allt íslendingar að þykjast. ég var í hláturskasti, fannst þetta mjög sniðugt hjá þeim. þau stóð sko öll í hring og hoppuðu og klöppuðu á meðan einn keppandinn var í hringnum að sýna sína allra bestu flumm-takta. það var m.a.s. tvisvar sinnum svona flumm-áskorun. þá voru tveir flummarar að keppast. svo datt rússinn og fékk flumm-meiðsl. hehehe... vildi að ég hefði verið svona sniðug að fatta upp á þessu...
ef ég er e-ð alveg að misskilja þá... sorrí. ég hló mig a.m.k. máttlausa yfir þessu... og var allt of lengi í pásu.

mig langar að vera flumm-meistari...
þau voru að auglýsa e-ð flumm-mót, hvar ætli sé hægt að skrá sig... hmmm...