fimmtudagur, júlí 04, 2002

nú fer ég yfir um! ég er veik sál, allt of veik sál fyrir útsölufárið sem er að hefjast. fór í gær á forútsölu hjá topshop smáralind, keypti þar 5 boli, takk fyrir, já 5 stykki! var svo "plötuð" til þess að kíkja á laugaveginn í hádeginu í dag og tjekka á útsölunum þar. jújú, ætlaði bara aðeins að tjekka, það ætti nú að vera í lagi, eða hvað? labbaði fyrst inn í 17 og beint í skódeildina og sá þá parið sem ég varð svo skotin í um daginn, og viti menn, á útsölu! kostaði áður 10.990,- en var nú á aðeins 5.990,-!!! ég fékk að máta. það var aðeins eitt par til í mínu númeri. ómægod, vissi sko ekki hvað skyldi gera. stebbi jarðbundni sagði að ég skyldi biðja afgreiðslukonuna að geyma parið á meðan við kíktum e-ð annað, bara í svona hálftíma... jújú, ekkert mál. röltum okkur þá yfir í kron... stóóóórhættulegt! fann alveg geeeeeeðveika skó... en þeir voru soldið dýrir. en þeir voru svo geeeeeeðveikir! ef ég hef e-n tímann verið í bobba þá var það þarna... iiiiiiiiiiiiiiiiiii... mig langaði í þá báða, og var virkilega að spá í að kaupa þá báða. þetta var mikið taugastríð. endaði með því að ég keypti kron skóna (sem voru ekki einu sinni á útsölu!) og tók stefnuna beint á 17 þar sem ég ætlaði að kaupa hina skóna líka. en þá skyndilega helltist yfir mig skynsemiskast, ef skynsemiskast er hægt að kalla... alla vega, þá tók ég sveig fram hjá 17 og brunaði beint í vinnuna.
fjúkket, þarna mjóaði sko munu...
hvernig endar þetta útsölufár allt saman eiginlega?