miðvikudagur, júlí 17, 2002

mér er orðið alveg illt fyrir ofan hægra eyrað og á vinstra eyranu, sko á eyrnablöðkunni (vottever...). ég þurfti nefnilega að skipta um sæti í vinnunni því konan sem átti borðið mitt var að koma úr sumarfríi. það var sko alltílæi því ég færði mig á gamla borðið mitt, borðið sem var mitt þegar ég vann hérna fúll tæm. nema hvað, að konan sem á það borð núna er greinilega með e-ð minni haus en mig minnti, því madonnu-mækinn hennar er svo asskoti þröngur að það er engu lagi líkt. sem svo orsakar líka þetta illt sem ég talaði um... leiðinlegt!