ólöf var full á laugardaginn og spjallaði við ara klæng, sem er einmitt hraðri uppleið eftir stjörnuleik sinn í nýjasta myndbandi í svörtum fötum. hann er að vinna við gerð nýju stellu-myndarinnar, stella í framboði. ólöf var að framapotast og ætlaði að athuga hvort það vantaði ekki sæta stelpu með rautt krullað hár. hún benti ara á fyrri afrek í leiklistinni... "ég hef leikið í glímumynd!". ég dó úr hlátri. "ég lék í heimildarmynd um íslensku glímuna". hún hætti ekki! ég andaðist gjörsamlega úr hlátri. hún er alveg yndisleg hún ólöf. hún var sko einu sinni að æfa glímu og var alveg heví góð, á medalíur og allt. hversu kúl er það að æfa glímu? hehehe. en ólöf, "akkuru hættiru í glímunni?". man! hehehehehehe...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim