lenti í frekar leiðinlegu atviki á laugardagskvöldið þar sem ég einfaldlega... já... tapaði kúlinu í smá stund. ég og þórhildur vorum stoppaðar og spurðar hvort við kynnum á linux. ænó! hvaða lúði pikkar í fólk og spyr hvort það kunni á linux? veit ekki alveg hvað vakti fyrir honum, kannski var hann sjúkur í okkur, 100% sjúkur... hehehehe... alla vega, þar sem ég er líka pínu lúði, þá hefði ég nú átt að geta svarað þessari spurningu játandi... en nei, ég kann ekki á linux. hefði átt að huxa í vetur þegar ég ákvað að skrópa í dæmatíma í stýrikerfum að ég gæti máske tapað kúlinu eitt laugardagskvöldið ef ég mætti ekki. oohhhh... akkuru huxar maður ekki fram í tímann... rææææt...


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim