fimmtudagur, júlí 11, 2002

leiðinlegt að vera eins klæddur og e-r annar.
ég fór í skóbúð um daginn og þar var stelpa að afgreiða sem var bara nákvæmleg eins og ég! frekar súrt. hún var í dökkbláum gallabuxum, skærgulri peysu (alveg ædentical) og með ljóst hár. ég var ekki lengi að hraða mér þaðan út. svo er stebbi alltaf að reyna að vera eins klæddur og ég. held að honum finnist kúl að vera kannski tvö á labbi og í alveg eins fötum... skrítið. ég er sko alltaf að reyna að segja honum eins og er, að það er alls ekki kúl. held að hann sé ekki að fatta það. tók upp á því fyrir nokkru að kaupa sér skærrauðan bol eins og ég á. svo alltaf þegar ég er í mínum, þá fer hann í sinn. frekkar lummó. svo þegar ég var nýbúin að kaupa skærgulu peysuna fór hann og keypti sér skærgulan bol. datt þetta bara í hug, því ég hitti hann í hádeginu í dag og við vorum bæði í gulu peysunum okkar. honum fannst það geðveikt kúl og mér fannst það geðveikt önkúl.
hehehe...