þriðjudagur, júlí 09, 2002

ég fór í sund í gær eftir vinnu, sem væri nú ekki í frásögur færandi nema hvað... það var kona í heita pottinum sem var með mesta yfirvaraskegg sem ég hef séð á kvenmanni! þetta var sko pottþétt kona, með þessa líka rosa þýsku hormottu. ég er náttúrulega svo barnaleg að ég fékk hláturskast og ætlaði aldrei að jafna mig, stebbi var farinn að skammast sín niður í tær fyrir mig. en halló! þetta var frekar hlægilegt... hed tú bí ðer kannski. endaði með því að við þurftum að færa okkur því ég fékk annars bara störu, og ekki er það nú fallegt... neinei.
annað kall-nei-kona-dæmi: þegar við vorum að keyra í sundið sá ég aftan á berleggjaðan hjólagarp. ég ætlaði að fara að nefna það hve massaða og skorna kálfa þessi hjólamassi hefði, og seisei mikið rosalega hafði hann fallegt og sítt hár. þá fattaði ég það og rak upp óp... þetta var kona! svona kálfa hef ég sko aldrei áður séð, ekki einu sinni á mössuðustu fótboltamönnum. mér þótti þetta frekar ógó. þessi fína kona með þessa líka skornu karlmannskálfa.
eru konur alveg að tapa kvenleikanum nú til dags... ég bara spyr...