mánudagur, júlí 08, 2002

ég borðaði alveg geggjaðan grillaðan humar á föstudagskvöldið. þorbjörg er algjör grillsnilli. söfnuðumst saman nokkur heima hjá john john, grilluðum og drukkum bjór. það var misjafnt hvað menn grilluðu, pylsur (einn maður grillaði 5 pylsur... vá!!!), hamborgara, naut/svín, kjöt á teini og humar, allt alveg rosa girnó. lenti í mjög súrrealísku eftir matinn. talaði heillengi við ara karls um hluti eins og vanskil og bunkanúmer... hmmmmm... mér þótti það frekar fyndið, svona eftirá að minnsta kosti. hehehehe... lúðabankafólk... jájá.
svo fórum við niður í bæ, beint á sportarann... frekar miklir lúðar, en það var sko eitís-kvöld þar, múnbúts að spila og bara rosa gaman, klikkuðum bara á búningunum.
ég fékk að gjalda fyrir pæjustæla mína á nýju skónum mínum, varð frekar illt. það átti sko eftir að ganga þá til, er a.m.k. búin að því núna ;-)