fór niður í nanoq áðan á útsölu dauðans. fór sko á slaginu 2 þegar útsalan átti að hefjast, ásamt öllu hinu fólkinu sem hugsaði eins og ég. eftir að hafa verið þarna inni í 2 mínútur og látið labba á mig hægri vinstri, stakk ég af. þetta er greinilega "löbbum-á-rut"-dagur. ég bara höndla ekki svona. ég vil geta labbað á mínum hraða, að það sé enginn fyrir mér, aldrei, og skoðað það sem ég vil. ég var ekki að fá þessar óskir uppfylltar þarna inni. það var líka erfitt að forðast myndavélarnar (bæði sjónvarps- og blaða). ég vildi ekki vera ein af þessu heimska fólki sem kemur alltaf í sjónvarpinu þegar e-ð svona er að opna, bt og soleiðis. samt var ég það algjörlega... en ég vil það ekki... neinei.
fór í staðinn í eymundsson og las séð og heyrt. ef þið hafið e-n tímann velt því fyrir ykkur hvar hemmi gunn væri staddur í heiminum (eins og ég hef mikið gert... hmmmm), þá býr hann nú á tælandi og hefur búið þar í 1 ár...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Heim